Heimili
Fimmtudagur 6. júní 2019
Heimili

Stólarnir sem eru að gera allt vitlaust í dag

Flottustu stólarnir á veröndina í dag eru EcoFurn stólarnir. Hönnunin á þeim er aðdáunarverð og lögun þeirra er einstaklega falleg og fangar augað. Þeir prýða umhverfi sitt á heillandi og framandi hátt.
Mánudagur 3. júní 2019
Heimili

Heillandi klassískur funkis stíll á heimili margrétar

Á fallegum stað í hjarta Vesturbæjarins, í reisulegu og stílhreinu einbýlishúsi á tveimur hæðum býr Margrét Leifsdóttir arkitekt og heilsumarkþjálfi. Sjöfn heimsækir Margréti og fær innsýn í heimilisstíl hennar og fjölskyldunnar.
Heimili

Bryggjan grindavík mikil lyftistöng fyrir bæjarbraginn í grindavík

Við höfnina í Grindavík stendur reisulegt og tignarlegt hús, sem hýst hefur netgerð í áratugi ásamt því að vera með lítið, kósý kaffihús í einu horni hússins sem margir hafa tekið ástfóstri við. Nú hafa nýir eigendur hússins, þeir Hilmar Sigurðsson og Axel Ómarsson tekið til hendinni og gert enn betur.
Heimili

Sérhæfa sig í dýnuhreinsun og þið trúið því ekki hvað leynist í dýnunni ykkar

Við eyðum um það bil einum þriðja hluta af ævi okkar í rúminu og flestir gera sér ekki grein fyrir því hversu mikil óhreinindi rúmdýnan hefur að geyma. Það mun koma ykkur á óvart þegar hulunni verður svipt af leyndardómi dýnunnar.
Sunnudagur 2. júní 2019
Heimili

Syndsamlega ljúffeng systursamloka croque madame

Á sunnudögum er fátt betra en að fá sér syndsamlega ljúffengan dögurð og það nýjasta sem ég töfraði fram úr eldhúsinu var þessi gómsæta croque madame með nýrri útfærslu sem bragðaðist ómótstæðilega vel. Þessi útfærsla féll svo sannarlega vel í kramið hjá heimilsfólkinu og verður klárlega á boðstólnum aftur.
Laugardagur 1. júní 2019
Heimili

Hefur þú kynnt þér neytendaþjónustu félags fasteignasala?

Sjöfn Þórðar heldur áfram með heilræði fyrir fasteignakaupendur. Að þessu sinni minnir hún á þjónustu sem í boði er fyrir fasteignakaupendur og hvernig þeir geta reynt að tryggja hagsmuni sína sem best þegar kemur að fasteignaviðskiptum.
Fimmtudagur 30. maí 2019
Heimili

Meistari í brauðtertugerð

Það má með sanni segja að brauðterturnar séu komnar sterkt inn aftur og samfélagsmiðlarnir loga af girnilegum og fagurlega skreyttum brauðtertum.

Við sem eldri erum þekkjum flest brauðtertur og höfum sjálfsagt borðað þær ófáar í alls konar veizlum og samkvæmum.
Hárgreiðslumeistarinn Ingibjörg Sveinsdóttir er ein af okkar flottustu brauðtertugerðar snillingum og veit fátt skemmtilegra en að laga girnilega brauðtertu og skreyta hana af hjartans list. Það er óhætt að segja það að brauðterturnar hennar Ingibjargar eru hreint listaverk og bragðast líka ómótstæðilega vel. Brauðtertugerð er ein af okkur góðu íslensku hefðum sem vert er að viðhalda og þykja ómissandi á hátíðarkaffihlaðborðið.
Heimili

Ingibjörg ljóstrar upp leyniuppskriftinni: fékk verðlaun fyrir þessa ljúffengu brauðtertu

Það má með sanni segja að brauðterturnar séu komnar sterkt inn aftur og samfélagsmiðlarnir loga af girnilegum og fagurlega skreyttum brauðtertum.Við sem eldri erum þekkjum flest brauðtertur og höfum sjálfsagt borðað þær ófáar í alls konar veizlum og samkvæmum.Hárgreiðslumeistarinn Ingibjörg Sveinsdóttir er ein af okkar flottustu brauðtertugerðar snillingum og veit fátt skemmtilegra en að laga girnilega brauðtertu og skreyta hana af hjartans list. Það er óhætt að segja það að brauðterturnar hennar Ingibjargar eru hreint listaverk og bragðast líka ómótstæðilega vel. Brauðtertugerð er ein af okkur góðu íslensku hefðum sem vert er að viðhalda og þykja ómissandi á hátíðarkaffihlaðborðið.
Mánudagur 27. maí 2019
Heimili

Frumsýning á stórfenglegri hönnun á urban flex sumarhúsinu frá urban beat

Með hækkandi sól og sumri langar mörgum til að fegra garðana sína, pallana og jafnvel hanna draumagarðinn. Aðrir vilja eignast drauma sumarhúsið og þrá ekkert heitar en að geta notið þess að vera úti á fallegum sumarkvöldum á huggulegum palli eða verönd. Björn Jóhannsson landslagsarkitekt sérhæfir sig í því að hanna draumagarðinn og uppfylla óskir hvers og eins.
Heimili

Fyrir kaupendur fasteigna er ástandsskoðun á fasteigninni mjög skynsamleg fjárfesting

Ein dýrasta fjárfesting sem flestir einstaklingar og fjölskyldur fara út í á lífsleiðinni er að kaupa fasteign. Það er margt sem ber að hafa í huga þegar fjárfest er í fasteign og meðal þess sem brýnt er að gera er að láta ástandsskoða fasteignina.