Þórunn Egilsdóttir látin

Þórunn Egils­dóttir, þing­maður Fram­sóknar­flokksins og fyrr­verandi þing­flokks­for­maður er látinn. Frá þessu greina nánustu aðstandendur hennar. Hún lét af þing­mennsku í janúar síðast­liðnum vegna bar­áttu sinnar við krabba­mein. Þórunn lætur eftir sig eiginmann og þrjú börn.

Þórunn sat á þingi fyrir Fram­sókn og varð fyrst þing­maður árið 2013. Hún leiddi lista flokksins í Norð­austur­kjör­dæmi fyrir síðustu Al­þingis­kosningar.

Sjá einnig: Þórunn hættir á þingi og einbeitir sér að annarri baráttu: „Maður má aldrei missa vonina“

Þingkonan greindi frá því milli jóla og ný­árs í fyrra að hún hefði greinst aftur með krabba­mein eftir að hafa lokið með­ferð. Þórunn hefur á­vallt verið opin­ská með veikindi sín.

Þórunn út­skrifaðist með stúdents­próf frá Verzlunar­skóla Ís­lands árið 1984. Þá starfaði hún sem sauð­fjár­bóndi frá árinu 1986. Hún var grunn­skóla­kennari árin 1999 til 2008 og skóla­stjórnandi 2005 til 2008.

Þórunn starfaði sem verk­efna­stjóri hjá Þekkingar­neti Austur­lands, nú Austur­brú, 2008 til 2013. Árið 2010 tók hún sæti í sveitar­stjórn Vopna­fjarðar­hrepps 2010 til 2014, þar af þrjú ár sem odd­viti.