Þórunn hættir á þingi og einbeitir sér að annarri baráttu: „Maður má aldrei missa vonina“

Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, hyggst ekki gefa kost á sér fyrir næstu Alþingiskosningar. Þórunn greinir frá þessu í yfirlýsingu sem hún birti á Facebook-síðu sinni í morgun. Hún greindist með krabbamein öðru sinni í lok síðasta árs. Greindi Þórunn frá því fyrir áramót að meinið væri komið í lifrina sem væri illa farin.

„Í upphafi árs 2019 greindist ég með brjóstakrabbamein og fór í gegnum stranga meðferð. Það ferli tókst vel og ég tók brött aftur til starfa síðastliðið vor enda meinið horfið. Ég var full bjartsýni, trúði að þetta væri farið og hugðist halda ótrauð áfram. Ég var sömuleiðis full orku og mig langaði að láta áfram til mín taka á þessum vettvangi og gefa kost á mér til þess að leiða framboðslista Framsóknarflokksins í kjördæminu næsta kjörtímabil,“ segir hún meðal annars.

Hún segir að í lok nýliðins árs hafi hún farið að finna fyrir óþægindum og rannsóknir bentu til að eitthvað þyrfti að skoða betur. „Þá kom í ljós að lifrin starfaði ekki eðlilega. Meinið hefur tekið sig upp að nýju en brýnt er að vera bjartsýn. Maður verður alltaf að horfa fram á við. Og maður má aldrei missa vonina. Aldrei. Framboð til Alþingis verður hins vegar að bíða betri tíma.“

Hún hefur setið á þingi fyrir Framsóknarflokkinn frá árinu 2013 og leiddi hún framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi fyrir síðustu kosningar. Þórunn segir að þetta hafi verið góður og lærdómsríkur tími í starfi.

Þórunn segir að Framsóknarflokkurinn hafi komið miklu til leiðar með samvinnu og áræðni og kveðst þess fullviss að aðrir öflugir einstaklingar taki við keflinu. „Ég vona og veit að okkur ber gæfa til að starfa saman enda er það lykillinn að árangri,“ segir hún.

Framundan eru alþingiskosningar. Ég hef setið á þingi fyrir Framsóknarflokkinn síðan 2013. Ég leiddi framboðslista...

Posted by Þórunn Egilsdóttir on Miðvikudagur, 13. janúar 2021