„Ætli við sjáumst ekki bara á DV á morgun: Edda gerir lítið úr Birgittu Líf“

Sam­fé­lags­miðla­stjörnurnar Edda Falak og Birgitta Líf eru gáttaðar á fram­ferði frétta­manna hér á landi vegna meintra deilna þeirra á milli, eftir að Edda virtist bauna á Birgittu á Insta­gram í svörum sínum til fylgj­enda sinna.

Að­dragandi málsins voru Insta­gram færslur Eddu frá því í gær. Þar gagn­rýndi hún Ísey Skyr­bar harka­lega en sam­kvæmt heimildum Hring­brautar var ekki hægt að vigta inni­halds­efnið í skyrskál Eddu, henni til mikils ama.

Þá fékk hún fyrir­spurn frá fylgj­enda, sem sagði að sér þætti skrítið að sjá Eddu leyfa sér að drulla yfir allt og alla. Sagði Edda að þar væri á ferðinni mjög ein­læg og krútt­leg at­huga­semd.

Birgitta tók þetta til sín

„En mér gæti ekki verið meira sama um hvort ísey skyr­bar sé í sárum þar sem eg fekk galið lé­lega þjonustu og vonda skál,“ skrifar sam­fé­lags­miðla­stjarnan. Hún segist aldrei munu hætta vera hrein­skilin.

„En ef þú vilt skoða ein­hverja omaggio vasa og balenciaga peysur þá ráð­legg ég þér að hoppa yfir á Lindu Ben eða Birgittu Líf be­cause they maybe more your type and doing pretty things.“

Svo virðist vera sem að Birgitta Líf hafi tekið um­mælum Eddu sem gagn­rýni, enda nokkuð auð­velt að túlka þau þannig. Í næstu færslu sinni á Story svæðis miðilsins lét hún mynd Kristínu Péturs, sem einmitt er barnsmóðir Binna Löve, núverandi kærasta Eddu Falak, fylgja með orðunum:

„Dag­lega gym peppið fyrir þá sem followa mig bara fyrir 'omaggio og balenciaga,'“ og lét hún flippaða bros­kalla fylgja.

Samfélagsmiðlastjörnur og meint ósætti og sætti þeirra á milli hafa vakið mikla athygli undanfarnar vikur. Í síðustu viku gerði Hringbraut meðal annars meintum vinslitum meðal Sólrúnar Diego og Camillu Rutar skil. Báðar gerðu þær lítið úr fréttaflutningnum og bentu á að það væri nú kóf í gangi.

Sjá einnig: Um þetta snýst ósætti Sólrúnar og Camillu: „Hún er að bíða eftir afsökunarbeiðni“

Sögu­legar sættir eftir orð­sendingu blaða­manns

Svo virðist vera sem að Edda, sem þekkt er fyrir hispurs­lausa gagn­rýni sína í garð ó­týnds starfs­fólks skyr­bara og annars þjónustu­fólks, hafi séð að sér eftir um­mælin í garð starfs­systurs sinnar.

Tók hún til Insta­grams að nýju, þar sem hún á­varpaði fylgj­endur sína vegna málsins. Sagði hún marga hafa spurt sig hvers vegna hún væri að ausa úr skálum reiði sinnar yfir Birgittu.

„Ég á­kvað að addressa eitt. Fólk er að senda á mig, af hverju ertu að gera lítið úr Birgittu. Ég á­kvað að gera það því hún deadar meira en ég, svo ég á­kvað að láta sjálfri mér líða að­eins betur. Djók,“ segir Edda.

„Málið er að þetta átti alls ekki að koma þannig út að ég væri að gera lítið úr henni, hún var tekin inn í þetta vegna þess að ég skrifaði balenciaga, sem er bara næs merki skilurðu, alla­vega þetta átti ekki að koma þannig út, ég væri náttúru­lega ekki að followa birgittu nema mér finndist hún hellað nett, þannig já, bara don't overt­hink it,“ segir stjarnan, sem minntist ekkert á starfs­fólk Ísey Skyr­bars að þessu sinni.

„En ætli við sjáumst ekki bara á DV á morgun, Edda gerir lítið úr Birgittu Líf. Segi svona, það væri eitt­hvað, en kæmi mér ekki á ó­vart,“ segir Edda.

Því næst birtir Birgitta skjá­skot af skilaboðum Eddu til hennar, þar sem má sjá orð­sendingu blaða­manns DV til þeirra beggja, sem vill aug­ljós­lega fá að heyra í þeim vegna málsins. Svo virðist vera sem að orð­sendingin hafi stuðlað að sögu­legum sættum meðal þessara sam­fé­lags­miðla­stjarna, en ekki er að sjá að Birgitta sé eitt­hvað ó­sátt lengur út í Edduna, enda báðar nú sameinaðar, hneykslaðar gegn einum óvin; DV.

„Í al­vörunni? Ég hef sagt þetta áður og segi enn, hvað í ó­sköpunum gengur á í "frétta­mennsku" á Ís­landi?“ spyr Birgitta. „Á ekki orð og dettur aldrei í hug að svara. Þetta er á­stæðan,“ skrifar sam­fé­lags­miðla­stjarnan Birgitta.

„#1 það er ekkert mál. #2 er ekkert annað mikil­vægara að gerast,“ skrifar sam­fé­lags­miðla­stjarnan aftur.