Unicef á íslandi auglýsti engan afslátt og hærra verð og setti sölumet á svörtum föstudegi

Íslendingar eru að taka Sönnum gjöfum UNICEF á Íslandi opnum örmum fyrir þessi jól og var sett nýtt sölumet á Svörtum föstudegi. Jókst salan um tæp 70 prósent frá síðasta ári. Það sem gerir þetta enn merkilegra er að enginn sérstakur afsláttur var veittur af gjöfunum og var verð meira að segja hækkað í tilefni dagsins af þeirri einföldu ástæðu að UNICEF gefur engan afslátt af því að bjarga lífi barna. Þetta framtak hreyfði greinilega við Íslendingum á þessum mikla kaupdegi.

Þessa aukningu segja verkefnastjórar fjáröflunar UNICEF á Íslandi meðal annars til marks um breytta tíma, aukna umhverfisvitund landsmanna og baráttu gegn sóun. Þá spilli auðvitað ekki fyrir að gott er að láta gott af sér leiða í aðdraganda jólanna.

Með Sönnum gjöfum UNICEF kaupir fólk lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir bágstödd börn sem UNICEF dreifir síðan til barna og fjölskyldna þeirra þar sem þörfin er mest. Sannar gjafir eru keyptar í nafni þess sem kaupandann langar að gleðja og fær viðkomandi gjafabréf með ljósmynd, lýsingu á gjöfinni og persónulegri kveðju frá kaupandanum. Sannar gjafir eru því umhverfisvæn og umbúðalaus gjöf sem gefa má með hreina samvisku.

Meðal annars sem hægt er að gefa sem gjöf eru, umhverfisvæn fjölnota dömubindi, jólahjól, klósett og sólarorkulampa, ásamt miklu meira sem aðstoðar fólk í neyð um allan heim.