Þórdís ósátt og sakar björn inga um rangfærslur: „nei ágæta þórdís kolbrún, það er ekki við viljann að sakast hér“

„Ég tek eftir því að menn hlaupa upp til handa og fóta, telja sig geta sagt: „hah, hvað sagði ég, hún berst fyrir streng!” Orð mín um sæstreng í gær voru nákvæmlega engin stefnubreyting. Engin ný skoðun. Ekkert að frétta. Viljinn segir ranglega í fyrirsögn að ég hafi í viðtalinu boðað könnun á fýsileika sæstrengs. Ég var ekki að boða neitt slíkt.“

Þetta segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir iðnaðarráðherra. Hún kveðst ekki hafa boðað stefnubreytingu, hún hafi einfaldlega verið að svara spurningu Heimis Más Péturssonar, þáttastjórnanda Víglínunnar um hvort sniðugt væri að selja raforku til útlanda. Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans hefur svarað Þórdísi Kolbrúnu og segir ekki við Viljann að sakast. Þórdís Kolbrún hafi marglýst yfir þeirri skoðun að fýsilegt sé að selja raforku til útlanda í gegnum sæstreng.

Þórdís Kolbrún segir á Facebook að hún hafi ekki verið að boða sæstreng og bætir við: „Rétt áður sagði ég það sama á Sprengisandi og að í þessu hagsmunamati yrði að sjálfsögðu að taka með í myndina þá verðmætasköpun sem getur orðið til með því að nýta orkuna hér á landi, störfin, áhrif á byggð o.s.frv. Þetta hef ég oft sagt.“

Þórdís Kolbrún segir að síðast þegar slíkt var kannað hafi niðurstaðan verið að slíkt væri langsótt og myndi ekki borga sig á markaðslegum grundvelli. Þá geti forsendur breyst og fráleitt sé að útiloka sæstreng um alla framtíð.

„Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar taldi þetta áhugaverðan möguleika á sínum tíma en það virðast vera orðin einhver trúarbrögð að vera á móti þessu, svo heiftarlega að það er umsvifalaust gert grunsamlegt ef einhver segir að það sé sjálfsagt að skoða þetta. Hvort hugsanlega kannski sé eitthvað í þessu fyrir Ísland, einhvern tímann.“

Þá segir Þórdís Kolbrún að sæstrengur sé ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar og engin ný ákvörðun hafi verið tekin. Þórdís Kolbrún segir: „Alþingi þarf að taka ákvörðun um að hefja slíka framkvæmd. Ég lagði sjálf til þær breytingar.“

Þá segir Þórdís Kolbrún í lok pistilsins:

„Menn geta skammast í mér fyrir að loka ekki dyrum til framtíðar, fyrir að gera ekki athugasemd við að fá frekari upplýsingar fram í veröld sem hreyfist mjög hratt. Það verður þá að hafa það, ég mun ekki breyta þeirri nálgun minni á framtíð Íslands.“

Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri Viljans hefur svarað Þórdísi Kolbrúnu. Á Viljanum segir:

„Nei ágæta Þórdís Kolbrún, það er ekki við Viljann að sakast hér.

Þú sem iðnaðarráðherra hefur marglýst þeirri skoðun að það geti verið fýsilegt að selja raforku til útlanda gegnum sæstreng. Vandinn er bara að þú vilt helst ekki að um þá stefnu þína sé fjallað. Hugmyndin virðist vera að keyra málið áfram undir yfirborðinu, en segja út á við að ekkert sé að frétta.

Og eins og í orkupakkamálinu skilurðu bara ekkert í þessum látum í fólki og líkir viðbrögðunum við trúarbrögð.

Líklega áttarðu þig þá heldur ekki á því að það eru gamlir og dyggir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins sem eru hvað ósáttastir við slíka stefnu.

Það er heldur ekki Viljanum að kenna.“