Snjóflóðahætta á morgun

Óvissustig vegna snjóflóðahættu á Mið-Norðurlandi tekur gildi klukkan 8 í fyrramálið, þriðjudaginn 10. desember. Spáð er mikilli snjókomu í mjög hvassri NA- og síðan N-átt á svæðinu. Búast má við því að snjóflóðahætta geti skapast í fjalllendi í Skagafirði, Tröllaskaga og austur fyrir Eyjafjörð.

Viðbúið er að snjóflóð falli í bröttum brekkum sem safna í sig snjó í NA- og N-áttum, einkum þar sem snjór safnast í gil.

Fylgst verður með snjóflóðahættu í byggð, en reistar hafa verið varnir í þéttbýli þar sem hættan var áður mest, t.d. á Siglufirði. Nánari upplýsingar á vef Veðurstofunnar https://www.vedur.is/#syn=snjoflod