Segir helga hrafn vanhæfan: „þetta varð endanlega ljóst við umræður á alþingi“

„Píratar og einstakir kjörnir fulltrúar þeirra spara jafnan síst stóru orðin þegar kemur að umfjöllun um pólitíska andstæðinga. Eins og frægt er orðið, vefst jafnvel ekki fyrir þeim að bendla aðra við rökstuddan grun um fjárdrátt og skiptir engu þótt það hafi leitt til formlegrar niðurstöðu um brot á siðareglum Alþingis.“

Á þessum orðum hefst nafnlaus pistill á síðunni Viljinn.is sem Björn Ingi Hrafnsson ritstýrir.

Í pistlinum segir að siðareglurnar eigi nefnilega ekki við Píratana sjálfa.

„Þetta varð endanlega ljóst við umræður á Alþingi í gær, þar sem ljóst varð að Píratar telja ekki að vanhæfisreglur eigi heldur við um þá, þegar þingmaðurinn Helgi Hrafn Gunnarsson steig í pontu og lenti í miklu orðaskaki við forseta Alþingis vegna kirkjujarðasamfélagsins.

Helgi Hrafn, sem er þekktur fyrir að ráðast á Þjóðkirkjuna hvenær sem tækifæri sem gefst og jafnvel oftar, sagði samning ríkisins um kirkjujarðirnar vera „óheiðarleg­an og til skamm­ar að taka ætti hann til meðferðar með svo stutt­um fyr­ir­vara og svo skömmu fyr­ir jóla­frí.““

Þá segir að ljóst sé að á svo skömmum tíma væri ekki unnt að veita málinu tiltæka meðferð. Jólin séu aðvífandi notuð sem kúgunartæki til þess að keyra málið áfram.

„Eða eins og þingmaðurinn orðaði það svo smekklega:

„Jól­in eru enn ein til­finn­inga­lega kúg­un­in til að koma hags­mun­um þjóðkirkj­unn­ar að um­fram aðra trú­ar­söfnuði í land­inu.““

Í pistlinum er þá tekið fram að svo skemmtilega vilji til að eiginkona Helga Hrafns sé forstöðumaður Siðmenntað og að hún hafi verið áberandi athafnastjóri þess félagsskapar undanfarið.

„Það þarf því ekki langskólanám í stjórnmála- eða stjórnsýslufræðum til að finna út að Helgi Hrafn er bullandi vanhæfur til að ræða þessi mál, hvað þá beita sér gegn umræddum samningum eða hafa áhyggjur af áhrifum þeirra á aðra trúarsöfnuði í landinu, svo notuð séu hans eigin orð.“

Þá spyr hinn nafnlausi einstaklingur sig á því hvort að Helgi Hrafn muni átta sig á því?

„Glætan. Píratar taka á spillingu, vanhæfi og vilja beita siðareglum, en ekkert af þessu á þó við um þá sjálfa.

Eins og sést hefur rækilega í borgarstjórn undanfarin ár, fer ekki saman hljóð og mynd hjá Pírötum þegar þeir sjálfir komast að kjötkötlunum. Þá hafa þeir engar áhyggjur af spillingarmálum og taka þátt í að þagga þau niður eins og verseraður og eldgamall kerfisflokkur.“

Að lokum segir hann ekki skrítið að allir upphaflegu Píratarnir séu löngu horfnir á braut.