Lík karls og konu fannst á sólheimasandi

„Kl. 11:55 í morgun fékk lögreglan á Suðurlandi tilkynningu um að lík konu hafi fundist á Sólheimasandi, skammt frá göngustíg að flugvélarflaki þar. Lögreglumenn fóru þegar á vettvang og í framhaldi af skoðun þeirra á vettvangi var kölluð björgunarsveit til frekari leitar.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir enn fremur:

„Um kl. 14:00 fannst lík karlmanns skammt frá þeim stað sem konan lá. Dánarorsök liggur ekki fyrir og verður ekki ljós fyrr en að lokinni krufningu á líkunum.  

Vísbendingar eru um að um sé að ræða par sem var að ferðast saman og hefur sendiráð viðkomandi ríkis verið upplýst um stöðuna. Bíll sem talinn er í leigu parsins er á bílastæði við Sólheimasand og vitað er að hann fór um Hvolsvöll á austurleið kl. 14:55 þann 13. janúar s.l.

Tæknideildar- og rannsóknarlögreglumenn eru við vinnu á vettvangi og er ekki að vænta upplýsinga af hálfu lögreglunnar að sinni.“