Fræðsluráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í dag, 12. febrúar að afnema sumarlokanir í leikskólum Hafnarfjarðar. Frá og með sumrinu 2021 verða leikskólar Hafnarfjarðar starfræktir allt sumarið. Þetta kemur fram á síðunni Hafnfirðingur.is.
Þar segir enn fremur að foreldrar muni geta valið um frí í júní, júlí eða ágúst, allt eftir þörfum hvers og eins. Taka þarf frí samfleytt í 4 vikur í senn eins og verið hefur.
Unnið verður að þessum breytingum í góðu samstarfi og samtali við stjórnendur og starfsfólk leikskólanna og foreldrum leikskólabarna.
Þá segir enn fremur í tilkynningu frá bænum:
„Fyrra fyrirkomulag hefur sett foreldra og börn í ákveðin vanda yfir sumartímann og foreldrar þurft að leita annara leiða til að tryggja vistun fyrir börn sín þegar leikskólinn lokar og foreldrar ekki í sumarfríi á sama tíma.
„Rannsóknir [benda] til þess að tengslamyndun barna við foreldra sína á fyrstu æviárum þeirra skiptir miklu máli í uppvexti þeirra og þroska og teljum við því að með þessari ákvörðun séum við að taka stórt skref í barnvænu samfélagi sem við búum við hér í Hafnarfirði.“