Kaupfélagsstjóri með 6 milljónir á mánuði: telur að ferðamenn komi til landsins til að fá örugg matvæli

Þekktasti kaupfélagsstjóri landsins er án efa Þórólfur Gíslason. Hann er nána oft sagður maðurinn á bakvið tjöldin þegar kemur að Framsóknarflokknum. Ætli menn sér frama innan þess flokks þurfi þeir blessun kaupfélagsstjórans. Þórólfur stýrir Kaupfélagi Skagfirðinga (KS) á Sauðárkróki og hefur gert síðan 1988. Hann hefur af mörgum verið talinn valdamesti maður Íslands. Kaupfélagið hefur unnið með Samherja og á stóran hlut í Morgunblaðinu og þriðjungshlut í Brim hf.

Þórólfur þénaði vel á síðasta ári en samkvæmt tekjublaði DV er kaupfélagsstjórinn með sex milljónir í tekjur á mánuði.  Þá greindi stundin frá því í fyrra að Þórólfur hefði greitt sér níu tíu milljóna króna í arð út úr eignarhaldsfélagi sínu, Háuhlíð 2 ehf. árið 2017 og sextíu milljónir árið þar á undan. Einnig kemur fram í Stundinni að lang stærsti hluti tekna Þórólfs hafi verið launatekjur.

Í umfjöllun Hringbrautar fyrr á árinu sem unnin var upp úr skrifum Morgunblaðsins sagði að ýmsar sögur hafi verið á kreiki í gegnum tíðina um Þórólf. Hann sé maðurinn á bakvið Framsóknarflokkinn. Blessun hans geti orðið til þess að pólitíkusar fái sæti á þingi. Fari pólitíkusar á móti honum geti það orðið til þess að eyðileggja nánast ferilinn eða drauma um frama á því sviði. Í viðtali við Morgunblaðið, sem kaupfélagið á eins og áður stóran hlut í, var Þórólfur spurður hvort umræða um hans persónu hafi áhrif.

„Ég hef aldrei verið mjög upptekinn af því hver umræðan er um mína persónu. Auðvitað hef ég séð ýmislegt neikvætt í fjölmiðlum í gegnum tíðina og stundum tekið það nærri mér. Það er hins vegar ekki auðvelt að bera hönd fyrir höfuð sér þegar maður verður fyrir svona dylgjum og jafnvel árásum, og ég hef einfaldlega kosið að einbeita mér að daglegum störfum fyrirkaupfélagið frekar en að elta ólar við margt af því sem sagt hefur verið bæði um mig og kaupfélagið.“

Þá var Þórólfur spurður um tengsl hans við Framsóknarflokkinn. Hélt Þórólfur fram að það væri þjóðsaga, þrátt fyrir að fjölmargar fréttir hafi verið sagðar af slíku. Var ein slík rifjuð upp á vef DV  sem birtist í þeim sama miðli árið 2013. Þá birti DV nærmynd af Gunnari Braga Sveinssyni sem þá var utanríkisráðherra fyrir Framsóknarflokkinn.

Þar sagði um samband Gunnars og Þórólfs:

„Þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra var sveitarstjórnarmaður Framsóknarflokksins í Skagafirði var talað um það í sveitinni að hann tæki enga ákvörðun án þess að ráðfæra sig við Þórólf Gíslason kaupfélagsstjóra KS. „Hann kom alltaf með Nýja-Testamentið frá Þórólfi og það á ekki síður við í dag,“ sagði aðili sem þekkir vel til stjórnmálastarfs í Skagafirði. Þetta var áður en Gunnar Bragi settist á þing árið 2009 og utanríkisráðherrann núverandi var oddviti framsóknarmanna í sveitarstjórninni Skagafirði. Árið 2009 söðlaði Gunnar Bragi um og bauð sig fram til Alþingis sem fyrsti þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Hin síðari ár hefur þó samband Gunnars Braga við Þórólf og Kaupfélagsmenn súrnað og var ástæðan ekki síst stuðningur Gunnars Braga við viðskiptabann á Rússland sem kom Kaupfélaginu illa.“

Þegar Þórólfur var spurður hvort hann stýrði Framsóknarflokknum á bakvið tjöldin svaraði hann:

„Nei, það er langt í frá. En ég hef verið flokksbundinn framsóknarmaður og skammast mín ekkert fyrir það. Framsóknarflokkurinn var alltaf flokkur grunnatvinnuveganna, sérstaklega landbúnaðar, og var landsbyggðarflokkur,“ svaraði Þórólfur og hélt áfram:

„Mér finnst mikið atriði að halda þeim sjónarmiðum á lofti með skynsömum hætti. En það að ég stjórni Framsóknarflokknum er einhver þjóðsaga sem fór á flug.“

Þá ræddi Þórólfur í sama viðtali um innflutning á kjöti og þá hvort hann væri þeirra skoðunar að koma í veg fyrir slíkt. Þórólfur sagði:

„Við erum talsmenn þess að fara verði mjög varlega í innflutning á hráu kjöti og öðru því um líku. Í landinu er mikil sérstaða, og með slíku væri verið að ógna henni.“

Þá bætti Þórólfur við: „Ég tel að ferðamenn komi ekki bara hingað útaf fallegri náttúru, heldur einnig af því að hér geta þeir gengið að öruggum matvælum. Við vörum mjög við því að stigin verði stór skref í þessu og teljum að tíminn vinni þarna með okkur. Við þurfum að hinkra og vanda okkur. [...]Óspillta náttúru og hreinleika matvæla er ekki hægt að byggja upp í sýndarveruleika. Þess vegna þarf að búa til varnir.“

Samkvæmt tekjublaði DV er Þórólfur með: 6.096.582 kr.