Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, er afar ósátt við fréttaumfjöllun RÚV af máli móður hennar, Sigríðar Sæland, þar sem greint var frá því að Sigríði hefði einni borist greiðslur frá Tryggingastofnun eftir dóm Landsréttar í maí. Eyjan greindi fyrst frá. Inga segir ógeðslegt hvernig sé reynt að gera málið tortryggilegt.
Í frétt RÚV kemur fram að Tryggingastofnun hafi eingöngu greitt Sigríði. Aðrir í sömu stöðu hafi fengið greitt samkvæmt lögum um almannatryggingar. Ákvörðunin var kærð til úrskurðarnefndar um velferðarmál, sem vísaði málinu til ráðuneytisins, þar sem málið er nú.
Landsréttur sneri dómi Héraðsdóms Reykjavíkur við. Tryggingastofnun hafði lækkað greiðslur vegna tekna lífeyrisþega frá lífeyrissjóðum, án þess að heimild hefði verið fyrir því í lögum. Alþingi setti lög 2017 sem heimiluðu skerðinguna en Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að það hefði ekki verið heimilt.
Flokkur fólksins höfðaði málið á sínum tíma. Lögmaðurinn sem rak málið valdi móður Ingu sem málsaðila, þar sem hún var með lægstu lífeyrissjóðsgreiðsluna og átti hún þar með mestu möguleikana á að hljóta gjafsókn.
„Móðir mín er 82ja ára gömul kona sem lögmaður okkar ákvað að tefla fram í málinu fyrir alla hina rúmlega 30.000. vegna þess að hún átti svo lítinn lífyeirsrétt og þar af leiðandi átti möguleika á gjafsókn,“ skrifar Inga á Facebook í gær um frétt RÚV af málinu.
„Það er vægast sagt ógeðslegt hvernig er reynt að gera þetta tortryggilegt eins og hér sé einhver skítur á ferð. Ég held að fólki sem hefur þegið peninga vegna þessa dómsmáls væri nær að þakka fyrir frekar en ata mann auri. Ég er gjörsamlega orðlaus,“ segir Inga. Hún segir fyrirsögnina ekki hæfa Ríkisútvarpinu.
„Hvet ykkur til að horfa á Kveik annað kvöld þar sem fjallað verður um málið, og vitiði bara hvað. Flokkur fólksins mun einnig fara í mál við ríkið ef það ætlar að heykjast við að greiða öllum samkvæmt dómsórinu nema MÖMMU MINNI ! Ef ég vissi ekki betur þá hefði mátt halda að fyrirsögnin kæmi frá slúður sorpriti.“