Handteknir í Hvalfjarðargöngunum

Fimm manns voru handteknir í aðgerðum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í og við Hvalfjarðargöngin á tíunda tímanum í morgun eftir að henni bárust upplýsingar um grunsamlegar mannaferðir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þar segir enn fremur:

„Fimmmenningarnir voru á tveimur bifreiðum, önnur var stöðvuð í Hvalfjarðargöngunum en hin við norðurenda þeirra. Hinir handteknu voru færðir á lögreglustöð, en í fórum þeirra fundust fíkniefni. Málið telst að mestu upplýst.“