Fjórtán fengu fálkaorðu í dag

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sæmdi fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.

Orðan er veitt tvisvar á ári, þann 1. janúar og 17. júní. 

Þeir sem fengu orðuna við hátíðlega athöfn á Bessastöðum voru:

1. Árni Oddur Þórðarson forstjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslensks atvinnulífs og útflutnings á sviði hátækni og nýsköpunar.  

2. Daníel Bjarnason tónskáld og hljómsveitarstjóri, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar tónlistar.  

3. Gestur Pálsson barnalæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu heilbrigðis barna.  

4. Guðni Kjartansson fyrrverandi íþróttakennari og þjálfari, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íþrótta og skóla.

5. Guðrún Hildur Bjarnadóttir ljósmóðir, Þórshöfn, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðisþjónustu í heimabyggð.  

6. Guðríður Helgadóttir forstöðumaður starfs- og endurmenntunardeilda Landbúnaðarháskóla Íslands, Kópavogi, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskrar garðyrkju og miðlun þekkingar.  

7. Jóhanna Gunnlaugsdóttir prófessor við Háskóla Íslands, Garðabæ, riddarakross fyrir kennslu og rannsóknir á sviði upplýsingafræði og skjalastjórnunar.  

8. Margrét Bjarnadóttir fyrrverandi formaður fimleikafélagsins Gerplu og Fimleikasambands Íslands, Kópavogi, riddarakross fyrir störf á vettvangi íþrótta og æskulýðsmála.  

9. Ólafur Haukur Símonarson rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leikritunar og bókmennta.  

10. Ólöf Hallgrímsdóttir bóndi, Mývatnssveit, riddarakross fyrir framlag til ferðaþjónustu og atvinnulífs í heimabyggð.  

11. Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til velferðar dýra, og störf á vettvangi dýralækninga og sjúkdómavarna.  

12. Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Reykjavík, riddarakross fyrir atbeina undir merkjum samtakanna Indefence og framlag til íslensks atvinnulífs.  

13. Sigurður Reynir Gíslason rannsóknaprófessor, Kópavogi, riddarakross fyrir framlag til íslenskra jarðvísinda og kolefnisbindingar.  

14. Valgerður Stefánsdóttir fyrrverandi forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra, Hafnarfirði, riddarakross fyrir störf í þágu íslensks táknmáls og jafnréttisbaráttu döff fólks.