Breyttar innflutningsreglur: ekki lengur krafa um frystiskyldu á fersku kjöti

Talsverðar breytingar urðu á reglum um innflutning á ferskum kjötvörum um áramótin. Innflytjendur þurfa nú meðal annars að sýna fram á að að ófrosið og óhitameðhöndlað kjöt af kjúklingum og kalkúnum sé ekki smitað af kampýlóbakter og ekki er lengur gerð krafa um frystiskyldu á fersku kjöti.

Þá taka viðbótartryggingar gildi sem þýðir að með sendingum af eggjum, svínakjöti, nautagripakjöti, kjúklingakjöti og kalkúnakjöti þurfa að fylgja staðfestingar á að ekki hafi greinst salmonella í vörunni.

Matvælafyrirtæki sem flytja inn kjöt til landsins eru hvött til að kynna sér vel breytingarnar en Matvælastofnun hefur gefið út leiðbeiningar vegna þeirra. Þær má finna á vef MAST.

Breytingarnar eru unnar í samræmi við aðgerðaáætlun í 17 liðum um að efla matvælaöryggi, tryggja vernd búfjárstofna og bæta samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu. Áætlunin var lögð fram af Kristjáni Þór Júlíussyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og var hún samþykkt sem þingsályktun hinn 19. júní sl.