Björgunarsveitarmaður fýkur: ótrúlegt myndband af björgun á suðurstrandavegi í kvöld

„Í þessum töluðu orðum eru tæki og mannskapur frá okkur á Suðurstrandavegi í alveg snarvitlausu veðri að bjarga fólki sem situr fast í bílunum sínum þar. Þá erum við einnig að sinna brotnum rúðum og fleiru sem er að fjúka í Grindavík.“

Þannig hljómar tilkynning frá Björgunarsveitinni Þorbirni sem birtir magnað myndskeið frá björgun á Suðurstrandavegi. Þar má meðal annars sjá einn björgunarsveitarmannanna fjúka. Biður lögreglan fólk að virða lokanir og setja ekki sjálfan sig og aðra í hættu. Í tilkynningu frá Þorbirni segir enn fremur:

„Búið er að loka Suðurstrandavegi en þetta myndband er tekið við gatnamótin að Kleifarvatni nú rétt í þessu.“