Wilhelm ósáttur: Ómerkilegt kassavín með 300-400% álagningu

Wilhelm Wessman, fyrrverandi hótelstjóri og eftirlaunaþegi, segir að álagning á vín og sterka drykki sé misnotuð freklega hér á landi.

Wilhelm gerir umræðuna um lokun skemmtistaða fyrr á kvöldin að umtalsefni á Facebook-síðu sinni og segist vera sammála rökum Dags B. Eggertssonar borgarstjóra um að ekki eigi að skerða opnunartíma þeirra.

Wilhelm segir að um sé að ræða sömu umræðu og fyrir 30-40 árum og vitnar til reynslu sinnar á þeim tíma.

„Þá var ég formaður SVG, Sambands veitinga-og gistihúsa, forvera SAF, og í forustusveit þeirra sem vildu lengri opnunartíma á veitingahúsum. Með lengingu opnunartíma færðust hin alræmdu heima partí úr heimahúsunum, með tilheyrandi ofbeldi og ónæði í heimahúsum og íbúðarhverfum. Ég tel aðeins lítið brot af því sem gekk á hafi ratað í bækur lögreglunnar,“ segir hann.

Hann segir að umræðan veki einnig upp minningu um baráttu sem SVG háði fyrir hækkaðri álagningu á vín og sterka drykki.

Wilhelm segir að þegar ljóst var að bjórfrumvarpið færi í gegn hafi veitingamenn hert róðurinn fyrir hækkun álagningu á vín og bjór. Hún hafi verið það lítil að hún stóð ekki undir umsýslu og lagerhaldi á víni.

„Daginn fyrir bjórdaginn boðaði stjórn SVG fund með félagsmönnum, þar sem við höfðum ekki fengið svar frá dómsmálaráðherra um hvort við fengjum hækkun á álagningu. Þegar ég var kominn í ræðustól hringdi síminn (ekki voru komnir gemsar þá), Erna Hauksdóttir framkvæmdastjóri fór í símann og í honum var Halldór Ásgrímsson dómsmálaráðherra með boð til fundarins um að hann veitti veitingamönnum frjálsa álagningu TIL REYNSLU.“

Wilhelm segist hafa flutt boðin við mikinn fögnuð fundarmanna.

„Þegar fagnaðarlátunum linnti sagði ég úr ræðustól að við þyrftum að fara vel með þetta vald og ekki hækka álagningu nema upp í 90% og voru fundarmenn sammála því. Í dag er álagningin misnotuð freklega. Lagt er á ómerkilegasta kassavín 300-400% og ekkert er tekið tillit til gæða eða þjónustustigs viðkomandi veitingahúss. Sú hefð sem var fyrir magni í vínglasi er löngu búið að gleyma, þannig að ef tillit er tekið til þess er álagningin í mörgum tilvikum komin langt yfir 500%,“ segir Wilhelm sem endar pistilinn á þessum orðum:

„Ég tel að umræðu um þessi mál þurfi að taka upp og setja í fastar skorður. Við tölum um að hækka gæði í ferðaþjónustu, þetta er hluti af því.“