Vill lækka kosningaaldurinn niður í 16 ár

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður utan flokka, auk tíu þingmanna úr Viðreisn, Pírötum, Samfylkingu, hefur lagt fram frumvarp um lækkun kosningaaldurs í 16 ár.

Þetta er alls ekki í fyrsta sinn sem frumvarp þess efnis er lagt fram en þau frumvörp hafa ekki náð fram að ganga. Þetta skiptið er lagt til að breytingar verði gerðar á stjórnarskrá, sem hefði áhrif á kosningaaldur í öllum kosningum, en síðast þegar sambærilegt mál var lagt fram snéri það eingöngu að sveitarstjórnarkosningum.

Samkvæmt greinargerð er frumvarpið hugsað til að styrkja lýðræðið með því að bregðast við aukinni kröfu ungs fólks um að hafa tækifæri til að taka virkan þátt í mótun samfélagsins. Rödd ungu kynslóðarinnar er sjálfsagður og ómissandi þáttur í því að bæta lífið í landinu, og með lækkun kosningaaldurs getur stærri hópur ungs fólks haft bein áhrif gegnum kosningar. Þetta myndi jafnframt auðga stjórnmálin með nýjum hugmyndum um leið og þjóðin er að eldast.