Verður nýr þjóðarleikvangur reistur í Grafarvogi? Gætum sparað milljarða

„Þurfum við ekki að spyrja okkur hvort upp­bygging nýs þjóðar­leik­vangs inni í miðri borg sé besti kosturinn, verður ekki að skoða aðrar stað­setningar vel?“

Þessari spurningu varpar Val­gerður Sigurðar­dóttir, borgar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokksins, fram í at­hyglis­verðri grein í Frétta­blaðinu í dag.

Tölu­vert hefur verið rætt og ritað um nýjan þjóðar­leik­vang enda Laugar­dals­völlur barn síns tíma í víðum skilningi. Ríkis­stjórnin hefur hafið við­ræður við borgina um nýjan þjóðar­leik­vang, en Val­gerður segir að því miður hafi þær við­ræður eins­korðast við að nýr leik­vangur ríkis í Laugar­dalnum. Val­gerður kallar eftir meiri víð­sýni og vill að nýr Laugar­dals­völlur – þó nafnið yrði vissu­lega annað – verði reistur annars staðar, til dæmis í Grafar­vogi.

„Hvers vegna eru ekki aðrir kostir skoðaðir? Þegar á að verja milljörðum af skatt­peningum er mikil­vægt að skoða hvaða kosti við höfum. Gætum við reist þjóðar­leik­vang á öðrum stað á höfuð­borgar­svæðinu sem jafn­vel myndi þjóna stærra hlut­verki og ekki kosta jafn mikið?“

Val­gerður segir að öllum sé ljóst að það verður dýrt og erfitt að byggja á nú­verandi svæði. Bendir hún á að Laugar­dalurinn sé gróinn og ára­langar stór­byggingar­fram­kvæmdir í ná­grenni við úti­vistar­svæði, skóla og sund­laug muni valda raski.

„Við Egils­höll í Grafar­vogi og upp að Vestur­lands­vegi er mikið af ó­byggðu land­svæði og þar er hægt að fara strax í upp­byggingu á meðan að í Laugar­dalnum þarf að fara í kostnaðar­samt niður­rif áður en hægt er að byrja að byggja upp. Það er ekki of­mælt að byggingar­kostnaður gæti orðið 20% lægri við það að byggja á ó­snertu landi en í Laugar­dalnum,“ segir hún en bent hefur verið á kostnaður við nýjan Laugar­dals­völl gæti numið um tíu milljörðum króna.

Val­gerður bendir á að nýr þjóðar­leik­vangur í knatt­spyrnu í Laugar­dal kalli líka á nýjan frjáls­í­þrótta­völl, en flutningur þjóðar­leik­vangsins myndi skapa aukið rými fyrir Þrótt og ár­mann til að þróa sína að­stöðu til hags­bóta fyrir fjöl­skyldur í hverfinu.

„Þurfum við ekki að spyrja okkur hvort upp­bygging nýs þjóðar­leik­vangs inni í miðri borg sé besti kosturinn, verður ekki að skoða aðrar stað­setningar vel? Hjarta ís­lenskrar knatt­spyrnu hefur slegið í Laugar­dalnum í 63 ár og á meðan hafa orðið ó­trú­legar breytingar á okkar sam­fé­lagi. Breytingar sem verður að taka til­lit til í þeirri upp­byggingu sem er fram undan. Ný ferða­mála­stefna var sam­þykkt árið 2020 fyrir Reykja­víkur­borg og þar er fjallað um mikil­vægi þess að auka ráð­stefnu­ferða­menn í Reykja­vík. Sam­hliða upp­byggingu við Egils­höll væri hægt að reisa þar ráð­stefnu­hótel, vera með veitinga­staði og ýmsa þjónustu. Slík fjár­festing gæti lækkað fram­lag skatt­greið­enda og styrkt rekstur leik­vangsins heil­mikið eins og hug­myndir voru uppi um fyrir nokkrum árum.“

Val­gerður segir að fyrir utan þetta sé auð­velt að skapa gott að­gengi að Vestur­lands­vegi og því ekki flókið að tengja nýjan þjóðar­leik­vang við al­mennings­sam­göngur.

„Mikil­vægast þegar kemur að þessu þarfa verk­efni er að spurt sé, koma aðrir staðir til greina, myndi önnur stað­setning ef til vill verða til þess að lyfta ís­lenskri knatt­spyrnu hærra, þjóna stærra hlut­verki og kosta okkur skatt­greið­endur minna?“