Umhverfis-Mummi fagnar banni á einnota plasti

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra, fagnar nýjum lögum sem banna einnota plastáhöld í skoðanapistli í Fréttablaðinu í dag.

„Hvaða vit er í því að nota einnota plastáhöld í nokkrar mínútur og síðan aldrei meir? Áhöld sem endast samt í mörg hundruð ár eftir það, þ.e.a.s. plastið í þeim, oft með alvarlegum áhrifum á lífríkið, ekki síst í hafi?“ skrifar umhverfisráðherra.

Í síðustu viku varð frumvarp Guðmundar um bann við sölu á einnota plastvörum að lögum. Plastskeiðar, hnífar, gafflar, diskar, rör og bómullarpinnar eru meðal þess sem mun hverfa af íslenskum markaði.

„Hvað ætli hvert og eitt okkar hafi notað margar plastskeiðar um ævina? Og hversu margar þeirra (sem ekki hafa verið endurunnar) ætli að séu ennþá til?“ segir umhverfisráðherra.

Engin tilviljun hvað er bannað

Ráðherra segir tilviljun ekki hafa ráðið því hvaða vörur voru bannaðar. Frumvarpið byggði á tilskipun Evrópuþingsins og -ráðsins um að draga úr áhrifum tiltekinnar plastvöru á umhverfið sem rannsóknir höfðu sýnt að væri hvað líklegust til þess að finnast sem rusl á ströndum. Um 80-85% rusls á ströndum í Evrópu er úr plasti, þar af um helmingurinn einnota plastvörur.“ Undanþágur eru þó gerðar ef vörur flokkast sem lækningatæki.

„Við erum þannig ekki að banna í blindni hvaða plast sem er, heldur einnota óþarfa sem veldur skaða í náttúrunni.“ Þetta þykir ráðherra lítil fórn með miklum ávinningi.