Þekkir þú þessa menn? Lög­regla þarf að ná tali af þeim

Lög­reglan á höfuð­borgar­svæðinu þarf að ná tali af mönnunum á með­fylgjandi myndum vegna máls sem hún hefur til rann­sóknar.

Þetta kemur fram í til­kynningu frá lög­reglu en ekki kemur fram hvers eðlis málið er sem lög­regla hefur til rann­sóknar.

Mennirnir eru beðnir um að hafa sam­band við lög­reglu­stöðina á Hverfis­götu 113-115 í Reykja­vík í síma 444 1000.

„Ef ein­hverjir þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lög­regluna, en upp­lýsingum má jafn­framt koma á fram­færi í tölvu­pósti á net­fangið hallur.halls­[email protected] eða í einka­skila­boðum á fés­bókar­síðu Lög­reglunnar á höfuð­borgar­svæðinu.“