Sprenghlægilegt myndband af Kára Stefánssyni vekur athygli á samfélagsmiðlum

Sprenghlægilegt mynd­band úr hlað­varpinu Chess after Dark fer nú eins og eldur um sinu á samfélagsmiðlum. Það eru þeir Birkir Karl Sigurðs­son og Leifur Þor­steins­son sem stjórna hlaðvarpinu.

Í umræddu myndbandi misskilja þeir félagarnir gest sinn Kára Stefáns­son, for­stjóra Ís­lenskrar erfða­greiningar.

Birkir Karl deilir mynd­bandinu sjálfur á Twitter síðu sinni. Kári ræðir í þættinum við þá fé­laga á meðan þeir tefla um ýmis­legt, líkt og feril Kára og ævi.

Virðist Kári vera að tala um rannsóknarstofu vísindamanns en þeir Birkir og Leifur eru ekki að kveikja á perunni, og halda að Kári segi: „Rassmotovic swisstomasz“, en það er að öllum líkindum algjört bull.

Sjón er sögu ríkari: