SÓUN Í FORSÆTISRÁÐUNEYTINU. Gegndarlaus útþensla gefur slæmt fordæmi

Eftir höfðinu dansa limirnir, segir gamalt máltæki. Það kann ekki góðri lukku að stýra þegar eyðsla og þensla í sjálfu forsætisráðuneytinu fer fram úr öllu hófi. Það gefur tóninn fyrir opinbera eyðslu og sóun.

Björn Jón Bragason birti athyglisverða grein í nýjasta tölublaði DV. Þar kemur fram í fyrirsögn að Katrín Jakobsdóttir hafi hvorki meira né minna en fimm pólitíska aðstoðarmenn. Björn Jón upplýsir að árið 1988 hafi verið fimmtán störf í forsætisráðuneytinu. Á tíma Jóhönnu Sigurðardóttur voru störfin orðin 35 en undir forsæti Katrínar eru störfin nú 54.

Þar á meðal hefur fyrrum þingmönnum verið komið fyrir í stórum stöðum eins og rakið er í grein Björns Jóns.

Spyrja má hvort þessi útþensla standist skoðun. Fljótt á litið verður ekki séð að verkefni ráðuneytisins hafi meira en þrefaldast að umfangi á þessum tíma. Flest bendir til þess að um sóun og stjórnleysi sé að ræða.

Fram kemur að tíu manns hafa starfstitilinn lögfræðingur, fimmtán eru „sérfræðingar“, sex eru skrifstofustjórar og þannig mætti áfram telja. Mesta athygli vekur þó að einn ber titilinn „ritari þjóðaröryggisráðs“ sem kemur að jafnaði saman tvisvar á ári!

Hvaða rugl er hér á ferð? Þurfa skattgreiðendur ekki að fara að spyrja alvarlegra spurninga um sóun á æðstu stöðum? Svona háttsemi æðstu stjórnenda smitar niður allt kerfið og eykur enn frekar á skefjalausa eyðslu og þenslu í opinbera kerfinu.

Til að bæta gráu ofan á svart telja ráðamenn svo að það þurfi að byggja kontór yfir allt þetta starfslið inni á þröngri lóð stjórnarráðshússins gamla. Ætlunin er að troða 1.200 fermetra húsi inn á lóðina og eyðileggja ásýnd þessa fallega og merka húss.

Á sama tíma er mikið um laust skrifstofuhúsnæði í Kvosinni. Þetta er ekki boðlegt. Sukkið í forsætisráðuneytinu þarfnast nánari athugunar við.

Skattgreiðendur og kjósendur eiga ekki að taka þessu athugasemdalaust.

Hér hafa fjölmiðlar þarft verk að vinna!