Skotið á skrifstofu Samfylkingarinnar? Lögregla rannsakar grunsamleg göt

Göt, sem gætu verið eftir byssukúlur, eru nú til rannsóknar hjá tæknideild Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu. Í húsinu eru skrifstofur Samfylkingarinnar. Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, staðfesti það við RÚVí morgun.

Þar segir að minnst sex göt séu á gluggum. Engan sakaði. Eins og sjá má á myndinni að ofan, sem tekin var nú fyrir skömmu, er líklegt að um skotvopn sé að ræða.