Skemmdar­verk á Sel­fossi: „Vonandi eruð þið stolt“

„Vonandi eru þið stolt af þessum skemmdar­verkum þið sem voruð hér að skemma.“

Þetta skrifar íbúi á Sel­fossi inni á í­búa­hópi Sel­fyssinga á Face­book. Hún lætur þar fylgja með myndir af leik­velli þar sem má sjá stór­skemmdir.

Í færslunni segir hún að hún hafi séð veipandi ung­linga sem jafn­framt hafi skilið eftir stubba. „Hvernig væri nú að for­eldrar færu nú að­eins að tala við krakkana sína um um­gengni og virðingu.“

Færslan hlýtur mikil við­brögð inni á hópnum. „Hvað er eigin­lega að frétta aldrei neitt sem fær að vera í friði. Þetta er varla árs­gamalt dót þarna á vellinum,“ skrifar Nína Bj Borgars­dóttir og kalla í­búar eftir að skemmdar­verkin verði kærð til lög­reglu.

Mynd/Facebook

Fleiri fréttir