Sjáðu mynd­band frá Fjöl­skyldu­hjálpinni í morgun

Það er jafnan mikið um að vera hjá Fjöl­skyldu­hjálp Ís­lands þá daga sem matar­út­hlutun fer fram. Með­fylgjandi mynd­band var tekið í morgun, eða í þann mund sem undir­búningi fyrir út­hlutun sem hófst klukkan 13 í Iðu­felli lauk. Út­hlutunin stendur til 16 í dag og svo aftur á morgun.

Í til­kynningu frá Fjöl­skyldu­hjálpinni kemur fram að í síðustu viku hafi 230 heimili fengið matar­að­stoð síðast­liðinn mið­viku­dag og fimmtu­dag í Reykja­nes­bæ.

Alls munu 400 heimili fá matar­að­stoð í dag og á morgun hjá Fjöl­skyldu­hjálpinni í Iðu­felli. Í til­kynningunni segir að loka hafi þurft fyrir um­sóknir þegar þær voru komnar í 400 og því hafa lík­lega færri fengið en vildu.