Sigurður Páll: Illa farið með Sigmund Davíð – „Hvernig má það vera að jafn saklaust athæfi veki slík viðbrögð?“

Sigurður Páll Jónsson, varaþingmaður Miðflokksins, segir að sú meðferð sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, hafi mátt sæta á undanförnum árum sé ekki sanngjörn.

Sigurður skrifar grein sem birtist á vef Vísis í gær, en tilefnið er gagnrýni sem komið hefur fram á Sigmund vegna erindis á ráðstefnu í Svíþjóð sem skipulögð er af sænskum þjóðernisöfgamönnum.

Sigurður rifjar upp í grein sinni að hann og eiginkona hans hafi staðið í húsbyggingu í fjármálahruninu 2008.

„Þetta voru erfiðir tímar fyrir húsbyggjendur sem aðra og stjórnmálamönnum voru vægast sagt mislagðar hendur í þessu ástandi og engin skýr lausn í kortunum.“

Tók kipp þegar hann heyrði í Sigmundi

Sigurður segir að vorið 2009 hafi hann verið að hlusta á fréttir og þar hafi ungur formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, verið í viðtali vegna þess að Framsókn ætlaði að verja ríkisstjórnina falli, meðal annars gegn því að farið yrði í 20% afskriftir af höfuðstól lána íslenskra heimila og fyrirtækja.

„Ég tók kipp, allt í einu var kominn stjórnmálamaður sem talaði í lausnum á einfaldan og skýran hátt. Engum duldist að þarna var stjórnmálamaður sem sá hlutina með nýjum og frumlegum hætti, en það sem var mest um vert, hann bauð upp á lausnir,“ segir Sigurður sem segist hafa farið að fylgjast með Sigmundi upp frá þessu.

Hann rifjar upp sigur Framsóknarflokksins í kosningunum 2013, skuldaleiðréttingu verðtryggðra fasteignalána og afléttingu gjaldeyrishafta.

Fór að bera á hatri

„Margt annað væri hægt að telja upp sem bætti hag þjóðarinnar á þessum árum. En um leið og Sigmundur Davíð var að breyta hlutunum til hins betra fór maður að verða var við mikinn mótvind, jafnvel hatur í hans garð frá aðilum sem ekki höfðu önnur ráð en að vera bara á móti, engin pólitík, engin rök, bara farið í manninn,“ segir Sigurður sem var kjörinn varaþingmaður og kom fyrst inn á þing haustið 2013. Hann kveðst strax hafa fundið fyrir þeim krafti sem fylgdi Sigmundi Davíð og vilja hans til að standa við kosningaloforðin.

„En einhverra hluta vegna jókst mótvindurinn og óbilgirnin í garð forsætisráðherra,“ segir hann og fer svo yfir það þegar Sigurður Ingi Jóhannsson var kjörinn formaður Framsóknarflokksins. Segir hann að „allt það baktjaldamakk og sú neðanjarðarstarfsemi sem unnin var var á móti Sigmundi Davíð fyrir þingið væri efni í heila bók“.

Feiminn innan um fólk

Eftir að Sigmundur Davíð stofnaði Miðflokkinn fylgdi Sigurður Páll honum og ber hann formanni sínum góða söguna.

„Kynni mín af Sigmundi Davíð eru að hann er eldklár eldhugi sem brennur fyrir að vinna þjóðinni gagn. Hann er hlýr og umhyggjusamur maður við nánari kynni en frekar feiminn innan um fólk. Hann er hins vegar feiknar góður ræðumaður, lausnamiðaður og lætur skynsemi ráða umfram tilfinningar. Hann lætur fátt sér fyrir brjósti brenna.“

Hann segir að þessi upprifjun og hugleiðingar hafi farið af stað þegar fréttir fóru að berast af hugsanlegri ræðu Sigmundar í Svíþjóð.

„Þar skein í gegn fyrirlitning, jafnvel hatur. Hvernig má það vera að jafn saklaust athæfi og að veita útlendingum innsýn inn í reynslu Íslands við að glíma við fjármálakreppu í ljósi núverandi þróunar efnahagsmála veki slík viðbrögð? Því miður er þetta orðið hluti af umræðuhefð nútímans sem gerir sannarlega engan að betri manni. Ég treysti hins vegar Sigmundi Davíð til að halda áfram að berjast fyrir skynsömum lausnum. Við þurfum á stjórnmálamönnum sem honum að halda.“