Sigga Dögg og Sævar giftu sig í vikunni: „Sóðalegasta athöfn allra tíma“ - Bönnuð innan 18 ára

Sigga Dögg kynfræðingur giftist sínum heittelskaða Sævari Eyjólfssyni á High Line í New York á miðvikudag. „Ég sagði já,“ skrifaði Sigga Dögg við mynd af nýgiftu hjónunum sem hún birti á Instagram.

„Í gær vorum við gefin saman og það var alger sóðabrókarathöfn þar sem heitin voru dónaleg algerlega bönnuð innan átján ára,“ skrifaði Sigga Dögg við myndina, að því er fram kemur á vef Fréttablaðsins. Segist hún ætla að halda íslenskt ástarpartí í sumar með þeirra besta fólki. „Þetta var auðvitað sóðalegasta athöfn allra tíma,en líka smá krúttleg,“ bætti hún við.

Vitnin í brúðkaupinu var fólk sem þau höfðu kynnst helgina á undan á djamminu og fóru heitin, dónalegu, fram á ensku, upplýsir Sigga Dögg afar glöð í bragði með daginn.