Play hóf miðasölu í morgun: Enn hægt að verða sér úti um frítt flugsæti

Play hóf sölu farmiða snemma í morgun og hefur aðsókn verið mikil á vefsíðu flugfélagsins, að því er segir í tilkynningu frá félaginu. Fyrstu sjö áfangastaðir PLAY eru Alicante, Barcelona, Berlín, Kaupmannahöfn, London, París og Tenerife.

Núverandi flugáætlun gildir út apríl 2022 og verður fyrsta flug félagsins til Stansted í London þann 24. júní næstkomandi.

„Þess hefur verið beðið með eftirvæntingu að PLAY hefji sölu og að áfangastaðir flugfélagsins líti dagsins ljós. Félagið, sem er að verða tveggja ára gamalt, efndi gamalt loforð til þeirra sem höfðu skráð sig á póstlista PLAY en þeim var gefið forskot á sæluna og fengu fyrstir tækifæri til að næla sér í þau 1.000 fríu flugsæti sem eru falin á www.flyPLAY.com. Enn er möguleiki á að bóka frítt flugsæti og þurfa áhugasamir að hafa hraðar hendur til þess að ganga frá bókun,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir að allir sem koma að félaginu séu hæstánægðir með að sala sé loksins hafin.

„Viðtökur hafa verið mjög góðar og við erum ánægð með þennan áhuga sem Íslendingar sýna nýju flugfélagi. Það má alltaf fagna samkeppni á íslenskum markaði“ segir Birgir í tilkynningunni.

Um helgina tilkynnti PLAY að félagið hefði fengið flugrekstrarleyfi en þar kom fram að fyrstu flugvélar félagsins eru nýlegar vélar af gerðinni Airbus A321NEO.

„PLAY býður upp á sveigjanlega skilmála vegna COVID-19 þar sem aðstæður geta skiljanlega breyst og það getur verið stressandi að skipuleggja ferðalög í heimsfaraldri. Með sérstökum sveigjanlegum skilmálum er reynt að tryggja eftir fremsta megni að ferðaupplifunin sé góð og að fólk geti bókað áhyggjulaust flug í fríið,“ segir að lokum í tilkynningu félagsins.