Nýjasta afurð Kaju sem töfrar alla matgæðinga upp úr skónum

Karen Jónsdóttir sem er að alla jafnan kölluð Kaja og er stofnandi og eigandi Matarbúrs Kaju hef­ur sent frá sér nýja vöru sem eru fala­fel-buff með chili brauðraspi þar sem lífrænu hráefnin eru í forgrunni eins og ávallt. Fala­fel-buff­in hjá Kaju hafa löng­um þótt mikið lostæti og með ný­legu sam­starfi við Brauðhúsið er mögu­legt að koma þeim á al­menn­an markað matgæðingum til mikillar ánægju.

Lífrænt vottuð, bráðholl og lostæti

Aðspurð segir Kaja að þetta sé loks­ins gerlegt þökk sé Brauðhús­inu. „Það sem við ger­um er að nýta brauð sem hafa verið tek­in úr sölu. Í stað þess að þeim sé hent þá þurrk­um við þau og möl­um til að nota í brauðraspinn okk­ar og svo bæt­um við líf­ræn­um dá­sam­leg­um krydd­um út í. Hér er verið að sporna við mat­ar­sóun og slá þannig tvær flug­ur í einu höggi,“ seg­ir Kaja. Fala­fel-buff­in eru líf­rænt vottuð sem er aðalmerki Kaju að sjálfsögðu og bráðholl, auk þess að vera al­gjört lostæti á bragðið. Matur og munúð sem fer vel saman.

M&H Falafel buff grænmeti 2021.jpg

Girnilegt með brakandi fersku salati, sprettum og spírum sem trylla bragðlaukana.

Hægt er að leika sér með meðlæti og má til að mynda framreiða þau með fersku lífrænt ræktuð salati og spírum og ljúffengri dressingu að eigin vali. Einnig er hægt að framreiða dýrindis vegan borgara með sínu uppáhalds meðlæti þar sem chili bragðið nýtur sín til fulls.

Fala­fel-buff með chili brauðraspi eru fá­an­leg í Matarbúri Kaju á Akranesi, Mela­búðinni, Nettó og Hag­kaup.