Nostalgía að njóta þessara leikfanga vörubíla

Þessir fallegu handgerðu vörubílar fást hjá Hnyðju og eru íslenskt handverk. Þeir minna á gamla tímann og eru algjör nostalgía. Vörubílarnir eru einstaklega fallegir og tímalaus hönnun sem fanga augað. Þeir eru sterkir og eigulegir. Þeir vaxa með eigendum sínum og eru fallegir gripir sem varðveita minninguna um bernskun. Síðan er hægt að láta þá ganga áfram með afkomendum eigenda sinna. Falleg gjöf sem gleður hjarta og sál.

M&H Vorubill-Raudur.png

Vörubílana er hægt að fá í fjórum litum, sæbláum, grænum, rauðum og bláum.

Hnyðja er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í nytja- og skrautmunum, að mestu unnum úr tré. Hver einasti hlutur er smíðaður af natni í höndum og lögð í hann mikil vinna og alúð í anda liðinna ára. Ávallt er leitast eftir að hafa efnivið eins náttúrulegan og umhverfisvænan og býðst hverju sinni. Þetta er þó eingöngu hugsjónavinna og hefur til dæmis ekki verið ofnæmis- eða öryggisprófað nema af fjölskyldunni sem framleiða. Olían er svokölluð „foodsafe“ olía, það er að segja olía sem má nota á eldhúsvörur og er bakteríufráhrindandi.

Hægt er að kynna sér vörurnar sem í boði eru nánar á Hnyðja.

M&H Vorubill-Saeblar.png

Einstaklega falleg hönnun og grípur augað./Myndir aðsendar.

M&H Vorubill-Blar.png