Myndband þar sem rifið er í hárið á stelpum á skemmtistaðnum b5 í miðbæ Reykjavíkur er nú með um milljónir áhorfa á samfélagsmiðlinum Twitter og hundruð þúsunda á TikTok.
Myndbandið má sjá hér að neðan en það er Geoffrey Skywalker sem vekur athygli á myndbandinu á Twitter. „Er þetta skrýtna drasl ekki tekið upp á B5?“ spyr hann og ljóst að svo er staðan.
Bent er á að myndbandið sé upprunlega að finna á TikTok reikningi hins 21 árs gamla Arnars Gauta, sem er vinsæll íslenskur TikTok notandi. Var hann meðal annars í viðtali í hlaðvarpsþættinum Gagnaverinu sem greint var frá á Vísi.
Hann er nú með rúmlega 300 þúsund fylgjendur á samfélagsmiðlinum. Um 490 þúsund manns hafa horft á myndbandiðá hans eigin aðgangi. Á Twitter þar sem myndbandið er birt á öðrum reikning með textanum „Þetta er rétta leiðin til að nálgast tík,“ má sjá að rúmlega tvær milljónir manns hafa horft.
mitt reaction pic.twitter.com/hJ0s2krPTd
— 💎 Donna 💎 (@naglalakk) August 24, 2020
Þetta er allavega þessi Tiktok user https://t.co/UQmvxDOep9
— Oddur Gunnarsson! Bauer (@oddurbauer) August 24, 2020
Ju alveg fokking eitt ógeðslegt dæmi
— Margrét (25) (@margretunnur) August 24, 2020
That’s the proper way you approach a bitch. pic.twitter.com/EENr265uRa
— Kirtash (@esencia_clasica) August 17, 2020