Afar skemmtilegt atvik kom upp í leik Víkings og Vals á Stöð 2 Sport í gær þegar Ríkharð Óskar Guðnason, Rikki G, var að lýsa leiknum.
Það brá mörgum þegar það fór að snjóa en svo virðist sem engum hafi brugðið jafn mikið og Rikka. Honum til varnar voru Valsmenn að smella boltanum inn í teig Víkings þegar hann ákvað að fara lýsa veðrinu og hefur það líklegast haft áhrif.
Sjón er sögu ríkari.
Rikki G að lýsa veðri er eitthvað sem ég vil oftar í mitt líf. pic.twitter.com/Rh3HqjIwp5
— Albert Ingason. (@Snjalli) March 21, 2023