Mynd dagsins: Þingmenn í samstæðum fötum

Logi Einarsson, þingmaður og formaður Samfylkingarinnar, birti mynd dagsins á Facebook-síðu sinni í morgun. Þar má sjá Loga við hlið Kolbeins Óttarssonar Proppé, þingmanns Vinstri grænna, þar sem þeir brosa báðir út að eyrum.

„Stundum birtast í einfaldleika hversdagsins skýrar vísbendingar um að hjarta okkar vinstrimanna slái þrátt fyrir allt oftast í takt,“ segir Logi og vísar fötin sem þingmennirnir klæddust.

Eins og sést hér að neðan eru Logi og Kolbeinn miklir smekkmenn: Báðir í röndóttum bol, dökkbláum jakka og dökkbláum gallabuxum. Einfalt og smekklegt.