Mynd dagsins: „Ég BILAST!“

Mynd dagsins er úr gámi fyrir utan birgðaverslunina Stórkaup í Skeifunni. Það er Alrún Ösp Herudóttir sem tók myndina og vekur athygli á gnægð banana, sem að því er virðast, eru í lagi.

„DÍSESS FOKK Af hverju í #$@!! er verið að henda þessu????? ÉG BILAST! (Stórkaup í Skeifunni) #matarsóundauðans,“ skrifar Alrún. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem umræða um slíkt á sér stað.

Það vakti til að mynda mikla athygli í febrúar síðastliðnum þegar forsvarsmenn Hagkaupa hentu rúmlega 300 innfluttum ostum. Sagðist framkvæmdastjóri Hagkaupa, skammast sín vegna málsins.

„Ætla að fara að byrja að dumpsterdæva. Who's with me?“ skrifar Alrún að lokum.

Fleiri fréttir