Manndráp á Ólafsfirði í nótt: Lögregla búin að handtaka fjóra

Maður var stunginn með eggvopni í húsi á Ólafsfirði í nótt og báru endurlífgunartilraunir ekki árangur. Tilkynnt var um málið klukkan 02:34.

Í skeyti frá lögreglunni á Norðurlandi eystra kemur fram að lögreglumenn frá Akureyri hafi haldið þegar á staðinn sem og lögreglumenn á bakvakt á Tröllaskagat. Þá voru tveir sérsveitarmenn ræstir út frá Akureyri.

Þegar fyrstu lögreglumenn komu á vettvang, voru endurlífgunartilraunir hafnar á karlmanni, sem var með áverka. Læknir og sjúkraflutningamenn komu einnig á vettvang en endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn á vettvangi.

Fjórir aðilar voru handteknir í þágu rannsóknar málsins og njóta þeir allir réttarstöðu sakborninga á fyrstu stigum málsins og meðan aðkoma þeirra að málinu er rannsökuð. Enginn er eftirlýstur vegna þessa máls, að sögn lögreglu.

Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Norðurlandi eystra, sem nýtur aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

„Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi og mikil vinna lögreglu framundan. Vegna rannsóknarhagsmuna er því ekki hægt að veita frekari upplýsingar um það að svo komnu.

Ákvörðun um hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum sakborninganna verður tekin seinna í dag,“ segir í skeyti lögreglu.