Lést úr COVID-19 - Þrettánda andlátið hér á landi

Einn sjúklingur lést á síðasta sólarhring á Landspítala vegna Covid-19. Þetta kemur fram á vef spítalans. Aðstandendum er vottuð samúð.

Alls hafa nú þrettán látist af völdum veirunnar hér á landi, er þetta þriðja andlátið í þriðju bylgju faraldursins. Í gær var tilkynnt um andlát einstaklings á níræðisaldri, hafði viðkomandi verið sjúklingur á Landakoti þar sem upp kom hópsýking nýverið.