Lára fengið nóg: „Þetta er galið“ – Áhrifavaldar fengu frítt spil

„Segjum að þú fáir botnlangabólgu eina bjarta sumarnótt og það er rokið með þig upp á spítala. Þreytulegur vaktlæknir segir að hann hafi enga trúa á skurðaðgerðinni sem sannreynt hefur verið að gefi bestan árangur. Hann ætli miklu frekar að nudda botnlangann eftir eigin tilfinningu.“

Svona hefst pistill eftir Láru G. Sigurðardóttur, lækni og pistlahöfund, sem birtist í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.

„Hvernig líður þér? Ég veit að mér yrði ekki rótt. Þessi læknir vill gera á þér tilraun, sem er gert með mýs en ekki menn. Góð heilbrigðisþjónusta byggir nefnilega á gagnreyndri þekkingu og rannsóknum á því sem virkar best hverju sinni.“

Í grein sinni gagnrýnir Lára þingmenn þjóðarinnar fyrir aðgerðarleysi þegar kemur að því að takmarka aðgengi unga fólksins til dæmis að nikótíni.

Hún segir að alveg eins og góð heilbrigðisþjónusta byggir á gagnreyndri þekkingu og rannsóknum eigi það sama að gilda um aðgerðir í lýðheilsumálum. Því sé ekki fyrir að fara hjá sumum af þingmönnum þjóðarinnar þar sem tilfinningar þeirra vega þyngra en þekking sérfræðinga.

„Í hartnær sjö ár hef ég ásamt öðrum með sérþekkingu á sviði lýðheilsuaðgerða ítrekað bent á mikilvægustu aðgerðirnar til að draga úr skaða af völdum áfengis og nikótíns, sérstaklega meðal unglinga. Misheppnaður uppskurður þingsins eru meingölluð lög um rafsígarettur, sem gera lítið annað en að normalísera notkun nikótíns. Sem dæmi opnaðist með þeim gátt fyrir áhrifavalda til að selja nikótín – sem getur verið brú yfir í aðra neyslu,“ segir Lára og henni þykir nóg um.

„Þetta er galið, því sem fyrirmyndir senda áhrifavaldar ungu fólki skilaboð um að „sá sem notar vöruna getur orðið eins og ég“ sem er eitt öflugasta markaðstrix samtímans. Og á þessum sjö árum hafa sumir þingmenn ítrekað reynt að greiða götu áfengis, sem af öllum vímuefnum ber mestan heilsufarslegan skaða fyrir samfélagið.“

Lára endar grein sína á þeim orðum að bólgnir botnlangar séu ekki nuddaðir eftir tilfinningu vakthafandi læknis.

„Þeir eru skornir burt. Sama á að gilda um vímuefni, það á að fjarlægja aðgengi ungmenna að þeim. Þingmenn þurfa að hætta þessum háskalega læknisleik og taka fyrir fullt og fast á þessu mikilvæga lýðheilsumáli.“