Kolbeinn segir blikur á lofti: „Allt eru þetta kunnugleg stef sem minna á Ísland fyrir 15 árum“

„Stundum er ágætt að staldra við ef maður finnur ónotatilfinningu ágerast í maganum. Þá getur verið gott að skoða aðstæður í umhverfinu og reyna að skilja hvað er í gangi. Sjálfur tel ég mig hafa séð nokkur óveðursský á himni.“

Þetta segir Kolbeinn Marteinsson almannatengill í bakþönkum Fréttablaðsins í dag. Kolbeinn varpar í grein sinni ljósi á þær aðstæður sem uppi eru í íslensku efnahagslífi en sumir eru farnir að óttast að einhvers konar hrun sé yfirvofandi. Kolbeinn gengur ekki svo langt en bendir þó á að blikur séu á lofti.

„Fasteignaverð hefur aldrei verið hærra. Allt selst og eftirspurnin er óseðjandi. Byggingakranar eru úti um allt höfuðborgarsvæðið, alls staðar er verið að byggja. Fjárfestir sem ég þekki sagði mér að allir í golfklúbbnum hans væru meira og minna að byggja blokkir. Verðbólga er farin að valda vandræðum og vextir fara hækkandi og munu hækka enn frekar. Almenningur sem hefur fjármagnað íbúðarkaup sín með óverðtryggðum lánum mun finna að slíkar vaxtahækkanir hafa hratt mikil áhrif,“ segir hann.

Hann nefnir fleiri dæmi. Þannig hefur sala á bílum með bílalánum sjaldan verið meiri og þá er olíuverð komið í svipaðar hæðir og árið 2008.

„Reynslan sýnir að þegar olíuverð er svo hátt hefur það slæm áhrif á heimshagkerfið og kreppa fylgir í kjölfarið. Bílastæðin við Leifsstöð eru yfirfull og kreditkortaeyðsla Íslendinga erlendis hefur aldrei verið meiri. Hlutabréfamarkaður hér á landi hefur vaxið gríðarlega eftir ævintýralega ávöxtun þó nú sé farið að hökta. Komur fólks á Vog með kókaínfíkn hafa aldrei verið fleiri. Allt eru þetta kunnugleg stef sem minna á Ísland fyrir 15 árum,“ segir hann.

Kolbeinn bendir á að árið 2007 hafi oft verið nefnt sem táknmynd veislunnar sem endaði með hruni. Verkefnið nú sé að tryggja að ársins 2022 verði ekki minnst með sama hætti. Kolbeinn telur að við getum vel leyft okkur bjartsýni.

„Hagkerfi okkar stendur á traustum grunni og enginn hefur enn borðað gull. Þegar haustar safnar bóndi forða fyrir veturinn. Það eigum við líka að gera og muna að á eftir vetri kemur alltaf vor.“