Jón Steinar hjólar í Kára: Moldríkur orðhákur sem kominn er á elliár

Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður sendir Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, eitraðar pillur í pistli sem birtist á heimasíðu hans í morgun.

Í pistlinum skrifar Jón Steinar um COVID-19-faraldurinn og aðgerðir yfirvalda til að stemma stigu gegn útbreiðslu veirunnar. Jón Steinar gengur nokkuð langt í grein sinni og líkir ástandinu raunar við nasismann í Þýskalandi. Bendir hann á að á öllum tímum hafi það verið öflugt vopn í heimi manna að nýta ótta við utanaðkomandi hættu til að ná pólitískum yfirráðum yfir hinum óttaslegnu.

„Sagan segir t.d. að almenningur í Þýskalandi á tímum Hitlers hafi verið svo hræddur að fólkið hafi nánast lagt blessun sína yfir illvirki hans við útrýmingu á milljónum gyðinga á árunum síðari heimsstyrjaldar,“ segir Jón Steinar en tekur fram að íslenska dæmið sé auðvitað ekki jafn alvarlegt og þetta þýska.

„En það er af sömu tegund. Við Íslendingar erum nefnilega að upplifa það að stjórnvöld leitast við að nýta ótta þjóðarinnar við veiruna miklu til að fá hana til fylgilags við ofbeldisfulla stýringu á háttsemi manna í því skyni að ná tökum á veirunni,“ segir Jón Steinar sem vindur sér því næst að Kára, án þess að nefna hann á nafn.

„Til liðs við þau kemur svo orðhákur úr röðum vísindamanna, sem kann að gera út á hræðslu almennings við hina skaðvænlegu veiru. Þetta framferði mannsins er líka til þess fallið að auka honum persónulegar vinsældir, eins og kemur fram í blaðagreinum og neðanmálsgreinum á netinu. Hann hallmælir dómstólum fyrir að virða meginreglur laga og uppnefnir þá sem fallast ekki á ruglið í honum. Sigríður Andersen alþingismaður hitti naglann á höfuðið þegar hún lýsti þversögninni sem felst í því að moldríkur orðhákurinn sem kominn er á elliár og vill reisa múrvegg á landamærum landsins, líkti öðrum mönnum við Trump úr Vesturheimi fremur en sjálfum sér.“

Jón Steinar spyr hvernig fólk haldi að múgsefjunin virkaði ef ausið væri yfir þjóðina stöðugum áróðri um skaðsemi sóttvarnaraðgerða. „T.d. um aukna tíðni sjálfsvíga, þunglyndi, atvinnuleysi, ógreinda sjúkdóma, frestaðar skurðaðgerðir og heimilisofbeldi, en lítið væri talað um skaðsemi veirunnar. Ætli múgsefjunin gæti þá snúist við?“

Jón Steinar segir að þó að nauðsynlegt sé að fást við veiruna ætti fólk að muna að önnur verðmæti séu í gildi í okkar landi sem við ættum ekki að fórna í hennar þágu.

„Þar á ég við lýðræðislegt skipulag, þar sem leitast er við að vernda frelsi og mannréttindi borgaranna. Látum ekki orðháka af ætt Trumps spilla þeim verðmætum.“