Jón Ingi fengið nóg: Hjónanna bíður glugga­póstur við starfs­lok – „Hvernig má það vera?“

„Hvernig má það vera að þegar sjötug hjón hætta á vinnumarkaði, eftir að hafa greitt fasteignina sína a.m.k. tvisvar ef ekki þrisvar til baka á lánstímanum, bíði þeirra gluggapóstur frá bankanum langt inn í ævikvöldið?“

Þessari spurningu – og fleirum – varpar Jón Ingi Hákonarson, oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í dag. Þar skrifar Jón um íslensku krónuna og þá staðreynd að Íslendingar borga langtum meira en íbúar nágrannalanda okkar þegar kemur að fasteignalánum.

„Ég tel að leikreglurnar séu ósanngjarnar og margt í okkar ágæta kerfi vinni gegn venjulegu, harðduglegu launafólki. Birtingarmynd stærsta vandans er sú staðreynd að ævilaun allt of margra Íslendinga duga ekki fyrir skuldlausri fasteign við starfslok,“ segir Jón Ingi sem spyr hvers vegna ævilaun venjulegs fólks í einu launahæsta landi heims standi ekki undir skuldlausri fasteign við starfslok.

„Ef við leikum okkur svolítið og berum okkur saman við Norðurlöndin og norður Evrópuríkin sést glöggt að frændur okkar þar greiða húsnæði sitt til baka einu og hálfu sinni. 60 milljón króna eign endar á lánstímanum í 90 milljónum. Hér á Íslandi hefur gilt að 60 milljón króna eign endi í 180 milljónum á lánstímanum,“ segir Jón Ingi.

Hann segir að munurinn liggi í því að íslensku alþýðufólki sé gert að taka lán í íslenskum krónum sem bera gífurlega háa vexti á meðan frændur okkar geta tekið lán í óverðtryggðum Evrum á mun lægri vöxtum.

„Það má því segja að kostnaðurinn við að halda úti krónunni sé í raun allt að helmingur mánaðarlegrar afborgunar af húsnæðisláninu þínu. Ef þú borgar 300 þúsund krónur á mánuði í afborganir af íbúðarláninu þá fara allt að 150 þúsund krónur í kostnað vegna krónunnar,“ segir hann.

Jón Ingi tekur fram að vissulega hafi vextir lækkað hér á landi að undanförnu, sem hefur gert það að verkum að greiðslubyrði nýrra lánað hefur lækkað, að minnsta kosti tímabundið.

„Þessi lækkun er þó ekki talin varanleg og því hefur Seðlabankinn varað almenning við því að óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum muni nær örugglega hækka verulega. Einnig hefur það ekki farið framhjá undirrituðum að stjórnmálamenn hafa verið iðnir í gegnum tíðina að útvega landsmönnum lengri lán, hærri veðhlutföll, 100% lán og brúarlán í stað þess að taka á rót vandans, krónunni,“ segir Jón Ingi og bætir við að krónan kosti þig jafn mikið og húsnæðið þitt.

„Mér finnst betri tilhugsun að hugsa sem svo að við lok starfsævinnar eigi ég skuldlaust húsnæði og andvirði fasteignarinnar á bankabókinni minni. Þessi framtíðarsýn mín er ekki framkvæmanleg með verðtryggðri íslenskri krónu. Íslenska krónan er fátæktargildra,“ segir hann og bætir við að lokum:

„Viðreisn vill taka upp stóra alþjóðlega mynt. Það vil ég líka.“