Íslenska stúlkan fannst heil á húfi á Spáni

Telma Líf Ingadóttir, íslensk stúlka sem leitað var að á Spáni, er fundin heil á húfi. Stjúpmóðir hennar, Guðbjörg Gunnlaugsdóttir, staðfestir þetta í samtali við Fréttablaðið og segir að systir Telmu hafi rekist á hana á leið upp í sveit til þeirra.

„Þetta gerðist bara fyrir fimm mínútum. Við erum á leið með hana til lögreglunnar. Hún áttar sig ekki sjálf almennilega á því hvað gerðist,“ segir Guðbjörg við Fréttablaðið.

Spurð hvort að það sé í lagi með Telmu segir Guðbjörg að þau muni fara með hana til að láta athuga ástandið á henni.

„Hún ráfaði upp í bæ, upp í sveit til okkar. Við vorum komin á Benidorm að leita að henni og við skiljum ekki alveg hvernig hún endaði þarna, en við eigum eftir að komast að því.“