Hundurinn hans Guðlaugs Þórs slær í gegn á Facebook – Sjáðu myndbandið

Óhætt er að segja að Máni, hundur Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra, eigi enga framtíð fyrir sér sem smalahundur. Að minnsta kosti ekki ef marka má skemmtilegt myndband sem Guðlaugur Þór birti á Facebook-síðu sinni í dag.

„Hef efasemdir um að Máni verði smalahundur. Kindurnar á sama máli,“ segir Guðlaugur Þór en í myndbandinu má sjá Mána hoppa og skoppa í kringum tvær kindur sem kippa sér lítið upp við afskiptasemi hans.

Máni er fallegur Golden Retriever-hundur sem er rétt rúmlega eins árs. Þetta skemmtilega myndband má sjá hér að neðan en segja má að það hafi glatt býsna marga á Facebook í dag.