Huldu brugðið eftir atvik í gær: „Svona framkoma er lífshættuleg - LÍFSHÆTTULEG!“

Hulda Geirsdóttir, útvarpskona á RÚV og þaulvön hestakona, birti mikilvæga áminningu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi. Hulda fór í reiðtúr í góða veðrinu í gær með syni sínum. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir það sem gerðist í reiðtúrnum.

Hulda segir að hún og sonur hennar hafi verið komin stutt á veg þegar þau mættu fyrsta hlauparanum. Þau tóku beygju inn á annan veg til að þurfa ekki að mætast, enda var sá vegur sameiginlegur og mátti hlauparinn vel skokka þar.

„Eftir það vorum við bara á sérmerktum reiðvegum sem - nota bene - hestamenn hafa byggt upp fyrir reiðvegafé, ekki sölsað undir sig eins og einhverjir vilja meina. Á þessum vegi mættum við þremur hjólreiðamönnum. Sá fyrsti var kurteis og stoppaði og spurði hvort hann væri á reiðvegi. Já sögðum við og þökkuðum honum fyrir að stöðva. Hann ætlaði að fara varlega þar til hann kæmist á annan slóða.“

Hulda segir að næsti hjólreiðamaður hafi hjólað framhjá án þess að stöðva eða heilsa. „En við vorum sjálf stopp í áningu og létum það ekki trufla okkur. Þann þriðja sáum við í fjarska. Áfram héldum við og sáum þá tvo hlaupara á reiðveginum framundan (ennþá á sérmerktum reiðvegi). Þær fóru út af veginum þegar þær urðu okkar varar og pössuðu að trufla ekki. Virkilega vel gert og tillitssamt.“

Hulda segir að þegar þau fóru að nálgast hesthúsahverfið aftur hafi þau séð í fjarska nokkra mótorkrossara tætast um á reiðveginum.

„Til að komast inn á hann þurftu þeir að fara framhjá reiðvegaskilti, bannskilti fyrir akandi umferð bíla- og bifhjóla og bannskilti fyrir reiðhjól. Við hægðum á okkur og sáum að það var eitthvað mikið í gangi, bíll stopp úti í kanti, fólk og hestar á veginum og krossarar að tætast í burtu. Kom í ljós að þeir höfðu ekið á fullri ferð á móti ríðandi umferð og sinntu ekki hrópum og köllum reiðmanna sem veifuðu og kölluðu og báðu þá um að stöðva.“

Hulda segir að þetta hafi endað með því að fólkið hálf henti sér af baki til að koma í veg fyrir stórslys. Þá segir hún að einn knapanna hafi stigið í veg fyrir hjól og sagt ökumanninum honum að stöðva.

„Sá ákvað hins vegar að ræsa hjólið aftur og keyrði utan í hestamanninn sem stóð á REIÐveginum. Þeir tættust síðan í burtu, yfir götuna og á reiðveg sem er hinum megin við veginn og upp í hlíðina hinum megin, utan vega. Hringt var í lögreglu, en ég veit ekki hvort eitthvað var hægt að gera,“ segir Hulda í færslunni sem vakið hefur mikla athygli.

„Svona framkoma er lífshættuleg - LÍFSHÆTTULEG! Þarna höfðu börn á hestum verið á ferð skömmu áður og munaði litlu að illa færi. Það er ekki að ástæðulausu að hestamenn kvarta undan ágangi á reiðvegina. Þessu verður að linna. Hlauparar, hjólarar og aðrir eiga sinn rétt á sínum sérmerktu stígum og sameiginlegum stígum og vegum, en reiðvegir eru fyrir ríðandi umferð. Virðum það og fræðum fólk í kringum okkur, ef þið þekkið ungt fólk sem á krossarahjól eða fjórhjól, útskýrið þessa hættu. Þarna munaði engu að yrði stórslys.“

AÐ LEGGJA AÐRA Í LÍFSHÆTTU! Ég fór í reiðtúr í góða veðrinu í dag með syni mínum. Við nutum þess að fara rólega af stað,...

Posted by Hulda G. Geirsdóttir on Miðvikudagur, 28. apríl 2021