Háskólaprófessor segir að borgin þurfi frjálst umferðarkerfi – Borgarstjórn sefur og dreymir strætódrauma

„Tiltölulega auðvelt er að létta á þessum vanda með endurbótum á þjóðvegakerfinu, en í tilraun til að afla pólitískra vinsælda, féll borgarstjóri í þá gryfju að vilja það ekki, heldur fækka bílum, sem er ekki hægt nema með þvingunaraðgerðum sem hafa afdrifaríkan efnahagslegan afturkipp í för með sér.“

Þetta segir Jónas Elíasson, prófessor í umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands, í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis um helgina og vakti talsverða athygli.

Í grein sinni fjallar Jónas meðal annars um slæma fjárhagsstöðu borgarinnar og segir að almenn óráðsía hafi gert borgarsjóð í raun gjaldþrota. Þetta hefi gert það að verkum að borgarstjóri sé í fjárhagslegu skrúfstykki og ófær um að gera neitt raunhæft í aðkallandi vandamálum. Þar séu samgöngumálin veigamest.

„Margir hafa bent á þetta, en borgarstjóri virðist hafa enn minni áhuga á hag þjóðarinnar en borgarinnar, heldur bara áfram sínum predikunum um borgarlínu sem allir vita nú orðið að skilar engu nema gleypa 100 ma. króna.“

Jónas segir að staðan sé erfið og gera megi ráð fyrir því að tafakostnaður hafi tvöfaldast árið 2030 eða fyrr. Þetta sé þó tiltölulega auðvelt að laga, en til þess þurfi að byggja nokkur mislæg gatnamót sem Reykjavík tók út úr skipulagi árið 2015.

„Sumir hafa viljað rekja þessa atburðarás aftur til Ingibjargar Sólrúnar, sem lét hafa eftir sér að Ísland þyrfti ekki amerískar hraðbrautir, en þetta er rangt. Samkvæmt orðanna hljóðan þýðir þetta einfaldlega að Ísland þarf ekki hraðbrautarkerfi samkvæmt amerískum stöðlum sem er alveg rétt. En úr þessu varð mislæga gatnamótaþrjóskan til, þrátt fyrir að þjóðvegakerfi höfuðborgarsvæðisins inniheldur yfir 20 mislæg gatnamót og munar ekkert um þau fáu sem þarf til viðbótar til að spara tafakostnað 10 – 20 ma/ári.“

Jónas segir að Reykjavíkurborg hangi á mislægu gatnamótaþrjóskunni. Hugsanlega megi rekja það til Pírata fremur en borgarstjóra. Þeir hafi fengið formennsku í skipulags- og samgönguráði árið 2018 og strax hafið baráttu fyrir bíllausum lífsstíl og grænni borg. Gagnrýnir hann Pírata fyrir „máttlaust einkabílahatur“ eins og hann orðar það.

Jónas segir að lausnin sé einföld og gera þurfi Miklubraut og Kringlumýrarbraut ljóslausar. Það kostir minna en að gera alla þá stokka og jarðgöng sem stungið hefur verið upp á.

„En hvernig á að koma þessum í kring? Vandinn er skipulagsvald Rvk sem komast þarf í kring um. Lausnin á því er tæplega nema ein, gera þjóðvegakerfið að sérstakri skipulagseiningu eins og flest önnur lönd hafa þegar gert. Til að ná þessu markmiði þarf að skerða skipulagsvald sveitarfélaga.“

Jónas fer ekki ofan af því að vanhæfi meirihlutans í borgarstjórn sé að stefna Íslandi í mjög vond mál.

„Samgöngustíflan í Rvk hækkar flutningskostnað í þríhyrningnum Akranes/Selfoss/Keflavík, en þar fer nánast allur inn- og útflutningur í gegn, þar á meðal allur neysluvarningur þjóðarinnar. Að þarna þurfi frjálst (free flow) umferðarkerfi liggur í augum uppi. En borgarstjórn sefur á sitt græna eyra, dreymandi strætódrauma.“