Guðni Gunnarsson, greinir frá því inn í Facebookhópnum Vertu á verði – eftirlit með verðlagi, að tryggingarfélagið VÍS hafi hækkað verðið á ábyrgðartryggingunni hans um 24% þrátt fyrir tjónleysi.
„Mér fannst ákveðin fegurð í skriflega svarinu þegar ég spurði um þetta. Nokkrir þættir sem valda og EKKERT hægt að gera Ég hefði skilið ca 10% verðbólguhækkun en finnst þetta heldur ríflega. Er hjá Verna í dag,“ skrifar Guðni og birtir svarið.
Svarið má sjá hér að neðan.