Hægeldað naut í rauðvínssósu sem sprengir allan skalann

Haustinu fylgir nýr ilmur og brögð úr eldhúsinu og ekkert betra en hægeldaður pottréttur sem hlýjar. Eldamennskan breytist einhvern vegin eins og haustlitirnir og nýir víddir opnast í sköpunargleðinni. Berglind okkar Hreiðars köku- og matarbloggari með meiru er komin í haustgírinn í eldhúsinu og bauð fjölskyldunni uppá þennan dýrinds pottrétt, hægeldað naut í rauðvínssósu sem hreinlega sprengir allan skalann með gamaldags kartöflumús.

„Þessi matur var mögulega ein besta máltíð sem ég hef eldað og það var bókstaflega skafin upp úr pottunum hver einasta arða bæði af kjöti, sósu og kartöflumús,“segir Berglind sem var að vonum afar glöð með útkomuna. „Ég elska haustin og að detta í haustgírinn í matseldinni, alls konar hægeldað, ömmumatur, súpur og „comfort food“ ratar klárlega oftar á borðið á þessum árstíma þó svo það sé líka gott að hafa eitthvað létt og öðruvísi inn á milli.“

Naut-agust-2-1024x683.jpeg

Hægeldað nautakjöt í rauðvínssósu

Fyrir 4-5 manns

Nautakjöt og sósa

Um 1 kg nauta „chuck“ eða annað svipað nautakjöt

1 stk. laukur

3 stk. gulrætur

3 stk. hvítlauksrif

350 ml Muga rauðvín

500 ml nautasoð

4 timiangreinar

3 lárviðarlauf

ólífuolía til steikingar

salt og pipar

  1. Hitið ofninn í 160°C.
  2. Byrjið á því að brúna kjötið upp úr olíu á öllum hliðum, kryddið með salti og pipar og leggið síðan til hliðar.
  3. Skerið gulrætur niður í sneiðar, saxið laukinn gróft og rífið niður hvítlauksrifin. Bætið olíu á pönnuna sem kjötið var á og steikið við meðalháan hita þar til grænmetið fer að mýkjast aðeins, í um 5 mínútur.
  4. Takið grænmetið þá af pönnunni, hækkið hitann og hellið rauðvíninu á pönnuna. Leyfið því að sjóða í um eina mínútu og bætið nautasoði, timian og lárviðarlaufum í pottinn ásamt 2 tsk. af salti.
  5. Setjið þá grænmetið og kjötið aftur í pottinn, lokið á og inn í ofn í þrjár klukkustundir, snúið kjötinu einu sinni á því tímabili og sjóðið kartöflurnar fyrir kartöflumúsina á síðasta klukkutímanum.
  6. Að þremur klukkustundum liðnum má taka kjötið upp úr og geyma undir álpappír. Næst má veiða lárviðarlaufin og timiangreinarnar úr pottinum, fleygja þeim og síðan mauka laukinn og gulræturnar í soðinu með töfrasprota þar til allir kekkir eru farnir.
  7. Náið suðunni þá upp í sósunni og leyfið henni síðan að malla í um 5-10 mínútur og smakkið hana til með salti og pipar eins og ykkur þykir þurfa. Sósan þykknar við að fá að malla smá stund en ef þið viljið hana enn þykkari getið þið pískað smá sósujafnara saman við.
  8. Þá má kjötið fara aftur í pottinn/sósuna við vægan hita á meðan þið útbúið kartöflumúsina.

Kartöflumús

1,2 kg soðnar kartöflur

25 g smjör

300 ml nýmjólk

1 msk. sykur

½ tsk. salt

  1. Flysjið kartöflurnar og setjið í pott við meðalháan hita.
  2. Hellið mjólk út á ásamt öðrum hráefnum og stappið með kartöflustöppu þar til þið hafið náð þeirri áferð sem þið óskið.
  3. Þið getið sett aðeins meiri/minni mjólk eftir því hversu þykka þið viljið hafa kartöflumúsina.
  4. Berið fram með hægelduðu nautakjöti og vel af rauðvínssósu úr pottinum.

Hægt er að fylgjast með Berglindi á síðunni hennar Gotterí og gersemar og Instagramsíðunni @gotterioggersemar

Naut agust-11-683x1024.jpeg