Gunnar Smári: Kristrún Frostadóttir gæti verið í Viðreisn eða Sjálfstæðisflokknum

Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, segir að stefna Kristrúnar Frostadóttur, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík suður, rúmist vel innan bæði Viðreisnar og Sjálfstæðisflokksins. Hann gefur lítið fyrir þá skoðun manna að framganga Kristrúnar innan Samfylkingarinnar sé til marks um að flokkurinn sé að færast til vinstri.

Gunnar skrifaði færslu um þetta inn á Facebook-hóp Sósíalistaflokksins í gær. Þar deilir hann viðtali Útvarps Sögu við Kristrúnu og segist hafa hlustað á tvö viðtöl fyrir hana nýlega.

„Kristrún talar fyrir stefnu sem vel rúmast innan Viðreisnar eða þess hluta Sjálfstæðisflokksins, sem kallar sig frjálslyndan á góðum degi. Ég heyri ekkert um verkalýðs- eða stéttabaráttu í þessum viðtölum, ekkert um hvernig skrúfa eigi niður ofurvald auðvaldsins, ekkert um þá grunnhugmynd vinstrisins að innan samfélagsins séu átök milli þeirra sem ekkert eiga og þeirra sem eiga mikið og vilja eignast meira,“ skrifar Gunnar Smári.

„En kannski er ég spilltur orðinn af því að horfa á heiminn frá vinstri og hættur að geta greint á milli þess hárfína munar sem á milli kratisma og kapítalisma. Ég heyri ekki betur en Kristrún sé með sama erindi og Viðreisn: Okkur er betur treystandi til að verja kapítalismans og vald auðsins en Íhaldinu.“