Guðmundur Felix: „Ég er ekki svona massaður“

Guðmundur Felix Grétarsson fór í þriggja mánaða skoðun í dag eftir að græddir voru á hann tveir handleggir í Frakklandi en Guðmundur hefur leyft fólki að fylgjast með endurhæfingarferlinu á samfélagsmiðlum.

„Á morgun, 13. apríl, verða þrír mánuðir liðnir frá aðgerðinni minni. Í dag fór ég ásamt fallegu konunni minni í þriggja mánaða skoðum með smá vefsýnistöku,“ skrifar Guðmundur í Facebook færslu um málið.

Hann tekur í létta strengi og bætir við að handleggirnir líti enn vel út þrátt fyrir að handleggirnir hafi tvöfaldast að stærð vegna bjúgs. „Ég er ekki svona massaður,“ segir Guðmundur léttur í bragði.

Hægt er að fylgjast með daglegu lífi Guðmundar á Facebook og Instagram þar sem hann fagnar litlu og stóru sigrunum í lífinu.

Tomorrow, April 13th, there will be three months since my #operation . Today I alongside my #beautiful #wife started my...

Posted by Felix Gretarsson - Coaching on Mánudagur, 12. apríl 2021