Finnar óðir í ísey skyr: 25 barir opnaðir í landinu

Ísey skyr bar hefur opnað bar í Helsinki í Finnlandi og hafa móttökur heimamanna verið með besta móti fyrstu dagana. Sigríður Steinunn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Ísey skyr bar, segir:

„Þetta er fyrsti Ísey skyr bar sem við opnum á erlendri grundu og er hann staðsettur í stórri verslunarmiðstöð í Helsinki.“

Þá er einnig haft eftir Sigríði Steinunni í tilkynningu:

„Staðurinn notar einungis Ísey skyr og þar eru notaðar sömu uppskriftir og hér á Íslandi, en Finnar borða mikið af Ísey skyri. Til gamans má geta að hvergi í heiminum finnst jafn mikið af Ísey skyr bragðtegundum og einmitt í Finnlandi, svo við vitum við þessi bar á eftir að leggjast vel í Finna.“

Þá segir enn fremur að gangi allar áætlanir eftir verður þessi Ísey skyr bar í Helsinki, einungis sá fyrsti í röðinni, en til stendur að opna yfir 25 Ísey skyr bari í Finnlandi á næstu 5 árum. Einnig stendur til að opna þrjá nýja Ísey skyr bari á þessu ári. Þeir verða í Kringlunni, í Smáralind og í Skeifunni.